Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Maður hefði haldið að reynslan af hervæðingu kommúniskra ríkja, þjóðernishreinsanir Stalíns og svokölluð Rússavæðing ætti að vera hverjum þenkandi manni augljóst svar.“ Spurningin ætti frekar að vera „Hve hægri sinnaðir voru Sovétmenn og aðrir “kommúnistar”?“, frekar en „Hve vinstri sinnaðir voru nasistar?“ „Það er í sjálfu sér sósíalísk nálgun að tala um “eign framleiðslutækja” og horfa fullkomlega framhjá því hvort menn fá greitt sanngjarnt og hvort þeir séu frjálsir til að ráðstafa sínum...

Re: N-Kórea

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Rússum væri alveg sama. Kínverjar væru kannske frekar á móti því. En þar sem að N-K hefur kjarnorkuvopn, sem ná örugglega til Japan og sennilega til vesturstrandar BNA þá er nú ekki líklegt að það verði ráðist á þá. A.m.k. ekki af BNA.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Annars er merkilegt hvað margir falla fyrir þessari ad hominem-villu. Þótt Hitler hafi verið hægrimaður, þá segir það bara alls ekki neitt um aðra hægri menn. Þótt nasistar séu hægrimenn, þá þýðir það augljóslega ekki að allir hægrimenn séu nasistar.

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ekki samstarfssamningur; nema „non-aggression pact“ hafi þýtt eitthvað allt annað þá heldur en nú. Hvað sem því líður, þá þarf enginn að velta fyrir sér viðhorfi Hitlers til bolsévíka: „Komið undan júðum“. Þótt menn geri með sér samninga, þá er ekki þar með sagt að það sé eitthvað mikið sameiginlegt með þeim - eins og ætti að vera ljóst m.a. af því að Vesturveldin voru almennt ágætir vinir Francos - já og Pinochet og hinna.

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Hitler var ekki hægri maður frekar en Stalín.“ O jú, kallinn minn. Það var hann. Hann var íhaldssamur, þjóðernissinnaður í meira lagi, og hafði mikla trú á sterkum her - allt saman einkenni hægri manna, frekar en sósíalista. Í Þýskalandi nasista áttu einstaklingar framleiðslutækin - en það er eins ó-sósíalískt og kostur er. Síðan er annað mál, að flestir eigendurnir voru annað hvort nasistar, eða þorðu ekki annað en að hlýða. Það skiptir bara alls engu máli hvað flokkur kallar sig - aðeins...

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Við vorum ekki að horfa á skáldskap eins og áhorfendur Al-Jazzeera sem flutti málsstað juntunnar í Írak.“ Já, sem var meira að segja svo hliðholl íröskum stjórnvöldum að þau hótuðu að reka einn fréttamann stöðvarinnar úr landinu um tíma, og banna öðrum að tjá sig. Sjá t.d. http://news.bbc.co.uk/2/hi/middle_east/2911935.stm

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég veit ósköp vel að það verða ekki næstum því allir háðir kannabisefnum. Sjálfum þykir mér miklu meira vit í því að kalla það vímuefni heldur en fíkniefni.

Re: Um muninn á víðsýni og hreinum bjánaskap

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
4: „Sovétmenn voru bandamenn þeirra vegna þess að þessar þrjár stefnur: sósíalismi, fasismi og nasismi eiga samleið í öllum meginmálum.“ Hmm? Semsagt, Sovétmenn voru bandamenn BNA og Bretlands í að berja á nasistum og fastistum vegna þess að sósíalismi, fasismi og nasismi eiga samleið í öllum meginmálum? Þetta er greinilega ágætis röksemdafærsla. Væriru til í að sýna okkur alla liði hennar?

Re: óMenning súkkulaði dólga - samfélagsgagnrýni

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Metallica hefur hins vegar breyst voða lítið en var aðal “conformista” tónlistin hérna í gamla daga.“ Hvaða gömlu daga ert þú að tala um? Á mínum gömlu dögum (og þó ekki nema um tíu ár síðan) var ég einn af tveum í mínum bekk sem viðurkenndi að hlusta á Met-arana og hafa gaman af svo ég muni. Æ, ég veit ekki. Ætli conformista-tónlist verði ekki að miðast við umhverfið og hvaða hóp maður er í? Þegar allir félagar hlusta á eitthvað hip-hop dót, þá er maður varla konformisti ef maður hlustar á...

Re: Lögboðin gjöld eru skattar.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hve mikið er endurgreitt fer eðlilega eftir aldri krakkanna. Mig minnir a.m.k. að endurgreiðsla frá Tryggingarstofnun, t.d. fyrir tannlæknaferðir, sé prósenta af kostnaði, en engin föst upphæð. En það er svosem dáldið síðan ég var krakki og ég er blessunarlega laus við að hafa skrýmsli á heimilinu.

Re: Kettir og hundar

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kannast við fólk sem hefur hund, kött og kanínu (og guð má vita hvað leynist í íbúðinni!). Það virðist bara ganga ágætlega, nema kötturinn er ögn hræddur við kanínuna.

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eins og ég segi, ég er ekki að neita því að *einhverjir* verði háðir t.d. súkkúlaði. Þeir eru líka til sem verða háðir hálsbrjóssigg, að drekka 4-5 lítra af vatni á dag og svo framvegis. En fíknin verður að fylgja neyslu efnisins í meirihluta tilvika - og mér sýnist það einfaldlega ekki vera tilfellið með súkkulaði eða kaffi. Til að ég geti samþykkt að eitthvað skuli teljast fíkniefni, þá má fíkn heldur ekki fylgja í kjölfar einhvers óhófs. Níkótín er t.d. fíkniefni því það þarf svo lítið af...

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er líka segja það; þótt einhverjir nokkrir verða háðir efni, og taka siðan til við það að leggja líf sitt í rúst af svo mikilli ákefð að ef þeim dutti nú í hug að beina kröftum sínað yrðu þeir léttilega fostjórar stófyrirtækja, þá er engin ástæða til að banna það. Hins vegar er ég mjög hrifinn af hugmyndinni um sterkar forvarnir. Svo er hitt, að til að eitthvað ætti að fá að teljat fíkniefni, þá þarf fíknin oftast að fylgja.

Re: Jón Gnarr

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hehe, engar áhyggjur; ég var ekki að gagnrýna greinina þína. Ég var að biðja RedFox um nánari útlistun á einu eða tveim atriðum.

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, það er satt; menn geta ánetjast öllum skrattanum. En þótt einhverjir örfáir hafi orðið háðir súkkulaði eða kaffi, þá er það alls ekki nóg til að kalla þessar vörur „fíkniefni“. Til að eitthvað sé fíkniefni, þá þarf það að vera algengt - reglan - að maður verði háður efninu. Það er ekki tilfellið með kaffi, súkkulaði, og ekki heldur áfengi. Að kalla eitthvað fíkniefni vegna þess að einhverjir örfáir hafa orðið háðir því er eins og að kalla allt sem manni dettur í hug „mannréttindi“: Það...

Re: Samfylkingin HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þjóðvaki, Kvennalisti, og hlutar Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Sumir úr A-flokkunum ákváðu að vera frekar í VG. Annars er Samfylkingin orðin að flokki upp á eigin spýtur, og þessi spurning því ögn undarleg.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Metallica Live sh*t:Binge & Purge

í Metall fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ha? Ertu að tala um kassan sem komút fyrir eitthvað um 6-7 árum síðan? Þrjár vídeóspólur (Mexíkóborg á tveim og Seattle á einni; Seattle er af …And Justice for All-túrnum) og þrír geisladiskar, sömuleiðis úr Mexíkóborg? Eða eru þeir að gefa út pakka sem heitir í raun og veru “Live sh*t:Binge&Purge” en ekki “Live shit:Binge&Purge”?

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Jón Gnarr

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Lestur fyrst, kommentar svo. Hann féll fyrst í áliti því hann sagðist vera stjórnleysingi: „Nýlega kom Jón fram í þætti Gísla Marteins og var talað um pólistískar skoðanur hanns en hann hélt fast í stíl sinn og kom þar fram að hann væri stjórnleysingi og féll Jón þá nokkuð niður í áliti hjá mér.“ Þetta er annars undarleg kenning, að hasshausar vilji hafa hass áfram ólöglegt. Ertu alveg viss um að þú hafir hugsað málið til enda?

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvaða bjálfar flokka kaffi og súkkulaði sem fíkniefni?

Re: Tilfinning...

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú verður greinilega að fara að temja þér heilbrigðara og betra viðhorf til kvenna. Mundu bara það sem gamli kallinn söng, segðu þetta á morgnana áður en þú ferð framúr, aftur þegar þú ferð að sofa, og alltaf þegar þessar hugsanir taka að leita á þig: „There ain't no end to the troubles that women bring.“ Þær byrja á að kvelja okkur með því að fæða okkur, og síðan linnir þessu ekki fyrr en líkið er komið oní jörðina. Já, eða þá bara vera þolinmóður.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: hvaða myndasögu hetjar er flottust eða í uppáhaldi

í Myndasögur fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Andrés er letingi; skil ekki hvernig nokkur getur haldið upp á hann. Jóakim Aðalönd, hins vegar … nú, það er sko einhver sem kann að vinna. Veit einhver annars til þess að ævisaga Jóakims (eftir Don Rosa) hafi verið gefin út á íslensku? Annars hefur mér löngum líkað við Jesse úr Preacher.

Re: Guevara og Castro

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ókláruð setning: „Guevara var á móti kapítalisma og sovéskum kommúnisma, en sagði sig vera Marxista og kom hann af stað“

Re: Svikaraflokkurinn

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hey, þetta er næstum því jafn fyndið og Vinstri hægri-snú.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Skólagjöld

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þá er spurningin - hvers vegna ætti allt að miðast við þá duglegustu? Þið eruð minnihlutahópur, hafið alltaf verið og munuð alltaf vera.

Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Farsæl efnahagsstjórn síðustu 12 ár

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
boltari: „Ætlaru að neita því að Davíð Oddsson hafi fengið 300 milljónir króna í aðra hönd frá Kára Stefánssyni fyrir að samþykkja ríkisábyrgð til handa DeCode? [...]það var ekki Davíð sem að borgaði verktakareikningana, eitt stykki hús í boði Kára.“ Hefuru nokkur sönnunargögn fyrir þessu? Ef þú hefur sönnunargögn, hvers vegna legguru þau ekki fram? Að þiggja mútur er jú ólöglegt - ertu að hylma yfir með glæpamanni? Eða skyldi þó ekki vera að þú sért bara að ljúga? Húsið sem hann bjó í var...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok