Nei sko, með anarkismann, þá eru a.m.k. tvær versjónir af honum; hægri og vinstri. Sá hægri kallast gjarnan kapítalískur anarkismi (eða í þá áttina), sá vinstri man ég ekki eftir að hafi annað heiti en anarkismi. Báðar ganga þær út á að taka völd af, eða jafnvel afnema, ríkið, en munurinn felst t.d. í hvernig eignarréttinum er háttað.