Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Skyldi sálin vera ódauðleg?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Ég á við að sál, í merkingunni sál (andi) óháð líkama, sé ekki til.“ Hvernig veistu að svo sé? „Sál er hins vegar til í merkingunni hugur, persónueiginleikar og tilfinningar, eitthvað sem sálfræðin fæst við, en sú sál er margþætt og einungis til á meðan líkaminn starfar.“ Þetta er ekki alveg rétt hjá þér. Segjum að ég yrki ástarljóð. Af einhverri ástæðu ratar það í t.d. Moggan og verður býsna vinsælt og endist í ótal ljóðasöfnum og öðru eins miklu lengur en ég lifi. Nú er það svo, að...

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Við erum þá að nota ólíkar orðabækur, því sú sem ég hef (og er reyndar bara á netinu) segir einmitt hið gagnstæða - en hún er nú líka aðallega að gera grein fyrir skoðun Davidsons um þetta efni. En það ætti nú varla að skipta svo miklu máli. Hins vegar held ég að það sem gerist í huganum verði að geta haft einhver áhrif á það sem gerist í heilanum, ef maður vill halda í það að hugur manns hafi einhver áhrif á það sem líkaminn gerir. Ef hugarferlin hafa ekki áhrif á neitt nema hugarferli, þá...

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
gthth: Nú er til önnur þýðing á „aukageta“ sem er „epiphenomena“, en sumir (tvíhyggjumenn) hafa gripið þess hugtaks þegar þeir hafa reynt að útskýra hvernig hið andlega er til. En þess háttar aukageta hefur alls engin orsakaáhrif. Þá skiptir ekki máli lengur þótt að ein löngun sé ekki algerlega efnisleg, þar sem það sem er óefnislegt hefur alls engin orsakaáhrif og allt sem skiptir máli fyrir orsakaskýringarnar er efnislegt. En síðan er allt annað mál hvort að „supervenience“ og epiphenomena...

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nei, þú ert alveg að misskilja. Ef þú notar eitthvað annað stýrikerfi en Windows, eða notar alls ekki tölvur, þá ertu ekki að nota Windows. Semsagt, þú kemst ekki hjá því að annað hvort nota Windows, eða þá að nota það ekki. Þú verður að gera annað hvort, að nota eða nota ekki.

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nei, mér sýnist ég ekki vera alveg sammála þér. Þegar ég segi að það sé engin góð mótástæða, þá á ég við að ef að það myndi gagnast samfélaginu (og ég veit ekkert um hvort það geri það eða ekki) að þetta væri gert, þá eru engar góðar ástæður til að gera það ekki. „Auðvitað eiga ekki að vera skilyrði fyrir því að fá að gefa einhverjum eitthvað (svo lengi sem að gjöfin er ekki ólögleg eða beinlínis skaðleg)!“ Einmitt. Ef það væri nú skaðlegt að ekki sé tekið fram hverjir gefi einhverjum flokk,...

Re: Var Móse hönd Guðs eða bara valdasjúkur pólitíkus?

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Þvílíkt rugl að maður deyi vegna heilagleika.“ Það var nálægðin við heilagleikan sem var svona hættuleg og ekki gefið nema örfáum að vera nálægt. Dáldið eins og geislavirkni. Hefuru ekki sér Raiders of the Lost Ark?

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Ég er heldur ekkert neyddur til að nota eitt eða neitt stýrikerfi, eða að borga skatta. Ég get notað Linux og flutt til BNA, mörg fylki þar sem að eru ekki með tekjuskatt.“ Það sem ég sagði var að þú verður að nota eða nota ekki Windows. Ef þú notar ekki tölvu, þá notaru ekki Windows. Ef þú notar Linux, þá notaru ekki Windows. Þannig að þú ert neyddur til að gera annað hvort. En þetta er bara smá útúrdúr - mér leiðist gjarnan á sunnudögum. „Það á einfaldlega ekki að vera að neyða fólk í...

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég verð nú reyndar að játa að ég er sammála þessu, og var nú frekar að þessu til að halda samræðum á lofti, já og til að hjálpa sjálfum mér að festa þetta í minninu. Ég vona að það fyrirgefist. Ja, kannske hafa einhverjir aðrir lært á þessu líka?

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nei nei. Við þyrftum bara að breyta siðadómunum aðeins, og taka kannske upp einhvers konar náttúruhyggju. Þá er hægt að segja að illmenni séu einfaldlega léleg eða gölluð, svipað og menn segja að býfluga sem segir hinum býflugunum í búinu ekki frá blómabreiðunni sem hún var að finna. En síðan er spurning hvort að það sé vit í svona náttúruhyggju. Mig grunar reyndar að þetta sé ekki alvitlaust.

Re: Heimspeki ?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Spurning hvort stjórnandi komi e.t.v. upp litlum kubb, ofarlega á síðunni, þar sem útlistað er í stuttu máli hvað heimspeki sé?<br><br>Hjartagosi tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég held að það sé nokkuð augljóst að langanir og aðrar innri orsakir, séu orsakir þess sem ég geri. Það mætti jafnvel segja, og ég held að það sé rétt að segja að það sem maður segi vera ástæður einhverrar tiltekinnar athafnar geti talist vera orsök athafnarinnar (a.m.k. hluti hennar). Ekkert af þessu ætti að vera andstætt hugmyndinni um frjálsan vilja, orsökun getur naumast falið í sér frelsissviptingu. Þá væru þær athafnir manns einar frjálsar sem ættu sér alls enga orsök, og þá aðeins þær...

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„thortho, afhverju á að neyða fólk til að gera bara annað hvort af því sem að það vill gera??!!“ Af því að það er þannig. Maður getur aldrei gert tvennt í einu ef það stangast á. Sumir valkostir útiloka aðra. Ef þú vilt vera opinberlega kærastinn hennar Önnu, þá geturu ekki opinberlega verið kærastinn hennar Binnu á sama tíma (a.m.k. ekki undir öllum venjulegum kringumstæðum). Og maður getur ekki bæði verið piparsveinn og giftur maður. Í öllum bænum, slepptu að ofnota upphrópunar- og...

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nú, þá bara sleppir það því að gefa flokkum pening. Það er ekkert flókið, erfitt eða óeðlilegt við það. Eitt upphrópunarmerki er alveg nóg. Fleiri gefa orðum ekki aukið vægi.

Re: Aðeins um þessa

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„það á enginn rétt á neinu“ Þótt þú sért nú ekkert að bögga einn eða neinn, ertu samt ekki til í að rökstyðja þetta nánar?

Re: Þjóðverjar,....afskiptalausir, ....huglausir???

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
thulesol: Venjan í dag, hvort sem er í Þýskalandi eða annars staðar er að skipta sér ekki af því þegar verið er að berja aðra, ræna þá eða hvað sem er. Ég held að það hafi ekki skipt einu einasta máli að gaurinn hafi verið gyðingur, ofbeldismennirnir Arabar, eða að þetta hafi verið í Þýskalandi. Þetta afskiptaleysi er jafnvel komið hingað - gamall maður dettur á miðjum Laugaveginum og það eru ófáir sem ganga framhjá og gera ekkert. Hópslagsmál niðri í bæ? Vegfarendur og löggan fylgjast með...

Re: ps.

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvers vegna? Þótt Guð sé alvaldur, þá er ekki þar með sagt að hann stjórni öllu. Að vera alvaldur þýðir að hann geti stjórnað öllu, ekki að hann sé í raun að gera það alla daga, öll kvöld. En kannske nennir hann ekki að stjórna hverjum og einum hinna sex milljarða manna sem búa hérna, og gaf okkur frjálsan vilja til að við gætum séð um okkur sjálf, ákveðið eigin athafnir og svo framvegis. Það er að segja, auðvitað, ef Guð er til.

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvað kemur það málinu við? Það er dálítill munur á því að gefa einhverjum flokki hálfa milljón og að kjósa hann í kosningum.

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Var að velta einu fyrir mér. Ef (efnis)heimurinn er vélgengur, og allar okkar hugarstarf er algjörlega efnislegt, þýðir það ekki að viljinn sé ekki frjáls? Það er að segja, ef vilji minn er ekkert annað en afleiðing heilaferla, sem aftur eru afleiðingar annarra efnislegra fyrirbæra, er þá eitthvað vit í því að tala um frjálsan vilja? Mér sýnist að ef það er tilfellið, þá get ég ekki annað en viljað það sem ég vil. Ég hef ekki hæfileikann til þess, hvað þá tækifærið, ólíkt fanganum sem getur...

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Jæja, Miðgarður hefur skýrlega tekið af öll tvímæli. Takk fyrir það!

Re: Bókhald stjórnmálaflokka.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í sambandi við þetta er ég að velta einu fyrir mér: Hefur Samfylking opnað sitt bókhald? Nú er það sá flokkur sem hefur hvað harðast barist fyrir því að lög um slíkt verði sett í lög, ekki satt? Væri þá ekki réttast af henni að gefa gott fordæmi og opna sitt, þ.e. ef hún er ekki þegar búin að því?

Re: Hugsunin á bak við fjölgyðistrú í Wicca

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Alls engu. En þetta er varla „nýleg“ kenning, nema „nýlegt“ fari all-langt aftur í tímann :) Annars var þetta „hehe“ meira hugsað sem „hey en skemmtilegt!“ heldur en neitt annað.

Re: Endurtekning sögunnar.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
„Þá sagði Mann “Þegar farið er að brenna bækur, er ekki langt í að verði farið að brenna fólk”. Þetta reyndist sannspá.“ Nei, þetta sagði Heinrich Heine, ekki Thomas Mann. Heine var löngu dauður þegar nasistar tóku við. Og munurinn á bókabrennum nasista annars vegar, og brennslu á bókum og geisladiskum í BNA hins vegar er sá, að hjá nasistum var þetta ríkisstyrkt, en í BNA er fólk að gera þetta upp á eigin spýtur. Það er engin hrindrun og engar hömlur á tjáningarfrelsi ef ég og nokkrir vinir...

Re: Dresden 2003

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í öllum bænum: Kynntu þér Dresden áður en þú ferð út í svona þvælusamlíkingar.

Re: Skyldi sálin vera ódauðleg?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef sálin er ekki til er hún ljóslega ekki ódauðleg. Ef hún er ekki til, þá er hún aðeins það: Ekki til. Það er varla hægt að segja mikið meira af viti um hana. Ef hún er ekki til, þá er þetta eins og hjal um hve hár og hve þungur konungur Íslands er. „Það sem er dauðlegt þarf fyrst að vera lifandi.“ En einmitt það sama gildir um það sem er ódauðlegt. „Ódauðlegur“ þýðir að sá sem um ræðir lifir að eilífu, eða að hann getur ekki dáið. Til að geta dáið þarf maður, eins og þú bendir réttilega á,...

Re: Sniðgöngum bandarískar vörur?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
hannesa: Þetta má vel vera barnaleg hugsun. Það er a.m.k. hægt að færa rök fyrir því að ekki sé tekið tillit til allra staðreynda málsins. Hins vegar er ég ekki viss um að það sé mikið fullorðinslegra að líta bara á fjöldann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok