Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Hvað hefur fólk á móti jafnaðarstefnu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Í stjórnmálum hatar maður alltaf þann sem er næst sér mest.“ Hvaða endemis bull er þetta eiginlega? Ertu nú alveg viss um að þetta sé ekki bara einhver della sem er búin til svo það sé hægt að halda í bullið um að Hitler hafi verið sósi?

Re: Hippar eru nei.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Semsagt, plöntur finna ekki til sársauka. Þær virðast kannske gera það, en þær gera það ekki. Það er a.m.k. niðurstaða mannsins sem þú vísar í.

Re: Hvað hefur fólk á móti jafnaðarstefnu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er ekki að segja það. Mér sýnist bara að þessi löngun hægrimanna til að „sýna fram á“ að Hitler sé vinstrimaður en ekki hægrimaður sé sprottin af þessari rökvillu.

Re: Hvað hefur fólk á móti jafnaðarstefnu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eins og menn vita kannske, þá er hægri stefna meira heldur eintóm frjálshyggja. Að Hitler hafi verið hægrimaður segir alls ekki neitt um hægristefnuna, það eru ekki góð og gild rök gegn hægristefnu að segja „Hitler var hægrimaður“.

Re: Kvikmyndahús

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Meira að segja eftir að hafa borgað 1700 kr fyrir miða, þurfti ég samt að horfa á 10 mínútur af auglýsingum fyrir myndina (sem byrjaði á þeim tíma sem myndin átti að byrja, svo örugglega enginn missti af þeim) og líka í þessu svaka hléi.“ Ímyndaðu þér þá hvað þú þyrftir að borga ef engar væru auglýsingarnar.

Re: Pólitísk hugtök - spurningar.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er kannske aðeins út fyrir efnið, en kemur ss í framhaldi af kúa-umræðunni í öðrum tenglinum hans geirag. A CHRISTIAN DEMOCRAT: You have two cows. You keep one and give one to your neighbor. Then you covet it. A SOCIALIST: You have two cows. The government takes one and gives it to your neighbor. You form a cooperative to tell him how to manage his. A DEMOCRAT: You have two cows. Your neighbor has none. You feel guilty for being successful. You vote people into office who tax your...

Re: Kosningaaldurinn........

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er bannað að afhenda þeim áfengi sem eru undir 20 ára. Það er ekki bara að menn mega ekki kaupa það, það er einfaldlega bannað að láta þá fá það. http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1277

Re: Nýtt kerfi í sjávarútvegi er nauðsyn.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er einfaldlega ekki rétt. Segjum að ég sé að fara yfir stærðfræðidæmi fyrir bróður minn, og að ég hafi hjá mér lista með réttum svörum. Í einu dæminu reiknaði hann vitlaust og fékk því ranga útkomu. Ég get sagt honum að hann reiknaði vitlaust, og ég gæti sagt honum hver útkoman á að vera, en ég get ekki gefið lausn á dæminu því lausnin þarf að fela í sér öll skref reikningsins. Annað dæmi: Segjum að vinur minn sé að reyna að semja all-langt ljóð til kærustunnar sinnar. Hann fær mig til...

Re: Nýtt kerfi í sjávarútvegi er nauðsyn.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Það er ekki nóg að gagnrýna, það verður að koma með lausn.“ Nefnilega ekki. Það er alveg nóg að sumir bendi á það sem þeim sýnist rangt. Einn til að leita að holum, annan til að spasla í þær.

Re: Hippar eru nei.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er ekki grænmetisæta, og ég get sem best ímyndað mér að tófúborgarar séu frekar vondir. Á hverju kennarinn/kennslubókin þá hugmynd að plöntur finni til sársauka? Menn eru ekki einu sinni á eitt sáttir hvort að fiskar finni til sársauka (samanber Vísindavefinn), hvernig er þá hægt að vita hvort plöntur finni til? Þær gefa ekki frá sér hljóð, þær iða ekki né gera nokkurn skapaðan hlut sem virðist hægt að tengja við sársauka. Þær virðast ekki einu sinni hafa taugakerfi né neitt slíkt (og ég...

Re: Bandaríkja Bush - Olía og kúgun

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nuff: Ég biðst afsökunar - og höfum okkar skoðanir út af fyrir okkur, svona upp á friðinn. Ég var hins vegar ekki að segja að við ættum að fordæma BNA dagsins í dag fyrir þetta, eins og kom fram í næsta svari á eftir mínu til þín.

Re: Er fólk fífl?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Taka mófó ÞÞ og skella honum í steypustígvél.

Re: Bandaríkja Bush - Olía og kúgun

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það má spyrja greinarhöfund að því, hvaða marglyttumáli það skipti að BNA hafi njúkað einhverja fyrir rúmum 50 árum. Strangt til tekið er ekki um sömu þjóð að ræða, ekki frekar en að Íslendingar eru sama þjóð og skrifaði Íslendingasögur.

Re: Dylgjur (ábyggilega mest notaðasta orðið í dag)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, og meindýraeyðir er ósköp einfaldlega ekki það sama og prófessor. Hverju mannsbarni ætti að vera það ljóst. Það þarf enga doktorsgráðu til að vera prófessor - einn merkilegasti núlifandi heimspekingur á Íslandi er lifandi sönnun þess. Já já, þú getur kallað þig prófessor ef þig langar; það breytir minna en engu um það að JSG er prófessor við Háskólann í Reykjavík. Hvaða fyrirvara viltu annars hafa á orðinu „prófessor“, varamaður?

Re: Bandaríkja Bush - Olía og kúgun

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nuff: Taktu þessa afstæðishyggju sem blossar upp í svörum þínum og fleygðu henni í ruslið, þar sem hún á heima. Það er eitt að bera virðingu fyrir gildismati annarra þjóða á öðrum tímum (eða samtímamanna okkar í öðrum heimshlutum); allt annað að segja að þetta sé ókei fyrst þetta var annar menningarheimur.

Re: Er fólk fífl?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Tja, varðandi kökuna: Vinstrimenn eru jafnvel frekar á þessari skoðun: „Við viljum ekki rétta sneið af kökunni. Við viljum bakaríið!“

Re: Hippar eru nei.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fatta ekki alveg hvað þú ert að segja. Er það semsagt ófrumlegt að lesa sömu bækur og einhverjir af kynslóðinni á undan? Er það þó ófrumlegt og halló að lesa Aristóteles og gríska harmleiki á frummálinu (sem ég væri svo hjartanlega til í að geta)? Fyrst pabbi las Kirkegaard, á ég þá að sleppa því?

Re: Auglýsing Samfylkingunar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Samfylkingarinnar, ekki Samfylkingunar.

Re: Dylgjur (ábyggilega mest notaðasta orðið í dag)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
http://www.ru.is/folk/default.asp#j Hvort sem þér líkar betur eða verr, þá er hann prófessor. Þetta er ekkert sem hann ákvað að kalla sig upp úr þurru.

Re: Íraksstríðið – Kostnaður í skiljanlegu samhengi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Víst er billjón til í íslensku máli. Hún er bara ekki það sama og bandarísk billjón (bandarísk billjón er íslenskur milljarður), heldur næsta sæti fyrir ofan milljarð (milljarður er þúsund milljónir, eða 1 000 000 000, og billjón er milljón milljónir, þ.e. 1 000 000 000 000). Láttu vera að leiðrétta ef þú veist ekkert um málið. Kíktu í orðabók.

Re: Herbalife geðveiki!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég var nú ekkert að meina neitt illt með þessu … sjálfur er ég all-langt frá því að geta talist feitur (og ég á myndir sem sanna það!) - amma er a.m.k. alltaf að kvarta undan því hvað ég sé alltaf að horast. Það er auðvitað sorglegt og hættulegt þegar fólk er orðið níu rúmmetrar eða eitthvað, en samt … Sumir eru bara þannig gerðir að þeir fitna sama hvað þeir éta. Subway-diet er ekki fyrir alla - þetta er að miklu leyti brauð, og sumir fitna alltaf af brauði.

Re: Hippar eru nei.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er alveg hjartanlega sammála þér um hvað þetta „holier-than-thou“ attitjúd er óþolandi.

Re: Íraksstríðið – Kostnaður í skiljanlegu samhengi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Þar sem allt er lofað sem ríkisstjórnin gerir.“ Tja… Ekki fer mikið fyrir aðdáun á Geir H. Haarde þar. Þar á bæ er ekki mikil hrifning af peningasóun ríkisins.

Re: Íraksstríðið – Kostnaður í skiljanlegu samhengi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Það að ríki ráði hvaða vörur þú kaupir er mjög kommúnískt.“ Nei. Það að það sé yfirleitt ríki er óhemju ókommúnískt.

Re: Íraksstríðið – Kostnaður í skiljanlegu samhengi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
RedFox: Jájá, whatever :) Þessir verndartollar eru afskaplega ókommúnískir, og alls ekki komnir vinstri sinnuðum kjánum, hvað svo sem þeir kalla sig (samstaða öreiga um allan heim and all that rot - sem er mikilvægur hluti þvottekta vinstristefnu). Ég er að komast á þá skoðun, hægt og rólega, að margir svokallaðir hægrimenn (t.d. á andriki.is) séu vinstrisinnaðri í mörgum mikilvægum málefnum (sem ég mun héðan í frá kalla 3m) heldur en svokallaðir vinstrimenn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok