Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Hefur Davíð setið of lengi?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sæll, Ágætis grein. Mig langar þó að gera nokkrar athugasemdir við seinasta hlutann hjá þér. „Við íslendingar höfum ekki íslenskt orð fyrir “Democracy”, en höfum þó tengt það við “Lýðræði”. Það finnst mér ekki hæfa vel. Orðinu “Democracy” er varla hægt að líkja við “Lýðræði”, þar sem “Lýðræði” er stjórnfyrirkomulag þar sem lýðurinn (fólkið) ræður.“ Er þá eitthvað tungumál sem hefur eigið orð yfir þetta fyrirbæri? Íslenskt stjórnskipulag er í öllum meginatriðum það sama og í öðrum...

Re: astekar svöl þjóð

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ég get sagt þér það idf að villimennirnir í þessu samhengi voru Spánverjarnir.“ En „[þ]etta var partur af þeirra menningu og þeim fannst það jafn sjálfsagt og okkur finnst sjálfsagt að kaupa mjólk eða skóta Íraka.“ Og hvernig geturu leyft þér að dæma Spánverja svona? „Getur þú tekið þér þann rétt til þess að dæma aðrar menningar“?

Re: Hvað hefur fólk á móti jafnaðarstefnu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
A, en sjáðu til: Í Sovétríkjunum var ekki hreinn kommúnismi. Í svipinn man ég barasta ekki eftir einum einasta stað á jörðinni þar sem hreinn kommúnismi hefur náð fram, nema kannske á ísraelskum samyrkjubúum. Það er eini staðurinn sem ég man eftir þar sem hérumbil allt er í sameiningu - dráttarvélar, land og uppskera. Ég veit ekki betur en að ísraelsk samyrkjubú þrífist ágætlega.

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Ætlar þú að halda áfram að skjóta þig í fótinn? Ég sagðist aldrei “vita” neitt það sem orsakaði skilgreiningu mína á ofstækistrú!!!“ Enda er enginn að halda því fram að þú vitir hvað orsaki skilgreiningar þínar. „Ef þú ert svo ómerkileg að geta ekki vitnað rétt í það sem fólk segir, þá ert þú á þínum persónulega hála ís!“ Það er nú bara nokkuð rétt vitnað í þig, ef satt skal segja. Thulesol segir „Eða sagðir þú ekki að það væri nóg fyrir þig til að sjá orðið helvíti til að vita að einhver...

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Samkvæmt hvaða orðabók? Ég hef hér hjá mér tvær orðabækur (Mál og menning 1992, Edda 2002), og í hvorugri þeirra er minnst á „útriðin“.

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sorrý, félagi, en „Ef þú skilur ekki að þetta tvennt sé ekki sambærilegt“ þýðir ekki það sama og „Ef þú skilur að þetta tvennt er sambærilegt“. „Ef þú skilur ekki að hestur er ekki fíll“ þýðir allt annað en „ef þú skilur að hestur er fíll“. Merkilegt nokk; íslenska er ekki stærðfræði. Svipaða sögu er að segja af niðurlaginu hjá þér. Að hafa það „ekki ekki ofsalega gott“ er ekki það sama og að hafa það „ofsalega gott“. Ég get haft það skítsæmilegt; þá hef ég það ekki ofsalega gott, og ekki...

Re: Kvikmyndahús

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég fer nú ekki í bíó nema ef það skyldi vera virkilega áhugaverð mynd, svo mér er eiginlega alveg hjartanlega sama um þessi bíóhús og hvernig þau verðsetja sína miða. Tólfhundruð-kall fyrir bíó er ekki svo mikið ef maður fer ekki nema einu sinni eða tvisvar á ári.

Re: Kvikmyndahús

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„bara benda á að sumt er þetta gert til að auka gróða en ekki, einsog thortho nefnir, til að halda miðaverði “lágu”…“ Eðlilega eru bíóin ekki með allar þessar auglýsingar til þess að halda verði niðri. Þau eru að sjálfsögðu að reyna að græða. Ef engar væru auglýsingarnar þá væri verðið á miðanum hærra, því bíóin vilja græða. Hvort sem þau gera það með því að hafa miðaverðið hærra eða að græða pening á auglýsingum skiptir þau engu máli. Þetta er svipað og með RÚV og Stöð 2. Ef RÚV væri ekki...

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eðlilega held ég að ég hafi rétt fyrir mér, a.m.k. oftast. Hver gerir það ekki? Er eitthvað vit í að líta svo á, að t.d. þú sért algerlega ósammála því sem þú segir, og trúir ekki einu orði af því sjálfur? Það er auðvitað gott og blessað að gera það (kem að því síðar), ég neita því ekki. Almennt er hins vegar eðlilegra að gera ráð fyrir því að menn trúi því sem þeir segja og líti svo á að þeir hafi rétt fyrir sér. Ef það koma fram einhver skynsamleg rök gegn skoðunum mínum, og ég hef engin...

Re: Bandaríkja Bush - Olía og kúgun

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Írak fær ekki líter af olíunni sem BNA dælir uppúr jörðu þar!“ Að sjálfsögðu er það ekki í lagi. En hvers vegna ertu svona viss um að þetta muni fara svo?

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég tek því nú bara sem hrósi að þér þykji ómögulegt að rökræða við mann. Það hlýtur að þýða að þú hefur engin haldbær rök.

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„“Nú er jafnel í deiglunni að setja herstöð í Írak til að styrkja stöðu bandaríkjanna í Arabaheiminum” Rangt, til að styrkja lýðræðisstjórnina sem tekur við. Lýðræðisstjórn er auðvitað hagsmunir BNA en líka Íraka og Evrópu.“ Rangt. Eðlilega vilja þeir fyrst og fremst styrkja eigin stöðu á svæðinu. Kannske ímynda þeir sér líka að sumir múslimar muni róast aðeins ef það er engin bandarískur her í Sádi-Arabíu. Hins vegar grunar mig að þeim sé nokkuð sama hvort það sé lýðræðisstjórn þarna eða...

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
MesserSchmitt: Ekkert af því sem þú segir, satt og rétt sem það er, breytir nokkru um það að notkun BNA á kjarnorkuvopnum fyrir rúmum fimmtíu árum segir ekkert um BNA í dag. Hvers vegna er annars eitthvað slæmt að ríki geri hluti vegna einkahagsmuna - og hve oft gerist það í raun að þau geri nokkuð sem er annað hvort gegn þeirra hagsmunum eða ekki á nokkurn hátt í þeirra þágu?

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og hve mikið af þessari skilgreiningu átti við Japan? „The objectives of such a plan would be disintegration of the political and social institutions, of culture, language, national feelings, religion, and the economic existence of national groups, and the destruction of the personal security, liberty, health, dignity, and even the lives of the individuals belonging to such groups.“ Bandaríkjamenn hafa framið nóg af þjóðarmorðum; það er engin ástæða að búa slík til þar sem þau eru ekki til staðar.

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Enginn að segja þá vera í ríkisstjórn. Þeir geta verið í flokknum fyrir því. „Og að reyna að afsaka stríðsglæpina sem að USA framdi í seinni heimsstyrjöldinni. með því að það sé svo langt síðan er fáránlegt.“ Ekki verið að afsaka stríðsglæpi, aðeins að benda á það sem fólk ætti að vita: Þetta segir ekkert um núverandi stjórn BNA.

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Bretar jújú, en bara fram til 1776, og síðan sáu Bandaríkjamenn um rest. Menn eins og Davy Crockett (einn af Alamo-köppunum) voru víst fjúkandi reiðir yfir stöðugum svikasamingum alríkisstjórnarinnar við indíána.

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Bandaríkin eiga ekki sök á neinum þjóðarmorðum.“ Mja, þetta er nú kannske ekki alveg rétt. Meðferðin á indíánum hér í den gæti alveg flokkast sem a.m.k. tilraun til þjóðarmorðs (nema þegar indíánaþjóðum var hreinlega útrýmt). En, eins og hvert mannsbarn ætti að sjá í hendi sér, þá segir þetta ekkert um BNA í dag - ekki frekar en sú staðreynd að flestir landnemar Íslands hafi verið útlægir ofbeldismenn, social misfits og þrælar segi neitt um Íslendinga í dag.

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mínir Topp-3 Satanar: 1. De Niro (en það er bara af því að það er Bobby, ekki vegna þess að hann sé sérstaklega kúl - eiginlega afar langt síðan ég sá myndina - ef satt skal segja man ég ekki einu sinni hvort hann hafi verið sá Svarti eða ekki - whatever, hann væri a.m.k. kúl Djöfull). 2. Al Pacino. 3. Harvey Keitel. Crystal er ekki nema í fimmta sæti, strax á eftir Tim Curry (sem er reyndar, strangt til tekið, Lord of Darkness - en hey, með rosaleg horn og rauða húð…ef minnið svíkur ekki)....

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„“Einnig þykir mér hreint með ólíkindum að hafa horft á RÚV sem er innilega að stimpla sig inn sem áróðursrás fyrir sjálfstæðisflokkinn.” Ég segi nú bara ertu ekki að grínast?“ Það mætti líka prófa að hlusta á Rúv, þá sérstaklega Rás 1. Sjálfur hef ég ekki gert það í háa herrans tíð, en mér skilst að munurinn á Sjónvarpsfréttum og umræðuþáttum í Sjónvarpinu annars vegar, og síðan á Rás 1 hins vegar sé alveg gríðarlegur.

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þangað til að ég hef annað fyrir mér en takmarkaða reynslu nokkurra manna af tiltölulega fáum múslimum (og á meðan sú reynsla er fengin frá fanatíkerum eins og Sádum), þá ætla ég að halda mig við þá trú að flestir eru þeir eins og við - mismunandi eftir einstaklingum. Ég meina, ef þú gengur upp að ókunnugum manni í miðbæ Reykjavíkur og segir „Jesús svaf með geitum, átti barn með svíni og biskupinn vill frekar kindur heldur en konur“ þá eru alveg líkur á því að fórnarlamb þitt muni bregðast...

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég rakst á einhverja íslamska vefsíðu, man því miður ekki hverja. Þar var ekkert lokað á það að kyn- og trúvillingar kæmust til himnaríkis. Það er jú Guð sem dæmir alla, þegar upp er staðið og hann dæmir eftir eigin geðþótta. Ef einhver var t.d. ekki múslimi, en lifði dygðugu og góðu lífi að öðru leiti, þá er ekkert útilokað að hann sé hólpnari en einhver sem segist vera múslimi og “goes through the motions”, en er skíthæll inn að beini. Dáldið eins og kaþólikkar, skilst mér. Mja, Gyðingar...

Re: Bandaríkin óvinur heimsins nr.1

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
„Bandaríkin eiga sök á flestum þjóðarmorðum af öllum þjóðum og nægir þar að nefna Hiroshima og Nagasaki “ 1. Ekki þjóðarmorð. 2. Ekki mannskæðustu loftárásir sem BNA gerði á Japan. Eldsprengjuárásir á Tokyo drápu t.d. fleiri. 3. Segir ekkert um Bandaríki dagsins í dag.

Re: Hvað hefur fólk á móti jafnaðarstefnu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„ég vill t.d. hafa“ ARG. Hvers vegna segir fólk sem er útskrifað úr leikskóla „ég vill“? Það er „ég vil“ - bara eitt ell. Tungumálsfasistinn kveður.

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Einn uppáhalds drykkur Saddams er rósavín. Áfengi er ekki bannað í Tyrklandi, og heldur ekki Egyptalandi, og ég efast um að það sé bannað í flestum meðal-löndum á svæðinu. Það er svosem ekki ætlast til þess í Egyptalandi að múslimar séu að drekka - en þar er líka all-stór kristinn söfnuður með engar reglur um áfengisneyslu. Þeim er alveg frjálst að brugga og drekka eins og þeim sýnist, og enginn þeirra myndi beinlínis neita múslima um drykk … ef músliminn getur borgað, auðvitað. Auðvitað eru...

Re: Bandaríkin - Heimsvaldastefna eða Kristniboð

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
„trú er mun meira mál fyrir fólk í mið-austurlöndunum heldur en hér.“ Á hverju byggiru þessa alhæfingu? Ef eitthvað, þá virðist trú frekar skipta minna máli þar heldur en hér. Í síðustu forsetakosningum skipti það óttalega marga máli -allt of marga- hvort að Ólafur væri kristinn eða ekki. Ég er líka nokkuð viss um það að það verður afar langt þangað til að múslimi komist á þing hér á Íslandi, hvað þá að hann verði ráðherra - ólíkt því sem er uppi á teningnum í Mið-Austurlöndum (en þar hafa...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok