Svo aðeins um grænmetisæturnar. Aðalhugmyndin er gjarnan sú, a.m.k. hjá þeim sem eru grænmetisætur af siðferðilegum ástæðum, að það sé rangt að valda sársauka, eða bera einhverja ábyrgð á sársauka annarra, þegar það er ekki nauðsynlegt. Það getur verið nauðsynlegt að særa einhvern og meiða til að koma í veg fyrir en meiri sársauka, eða þá til að brjóta ekki einhverja æðri siðferðisreglu eins og að segja satt. Sá sársauki sem dýr þola við slátrun er, strangt til tekið, ekki nauðsynlegur - það...