Það var nú klaufaskapurinn í DC sem að kom honum í þessi vandræði. Hann drap á bílnum í upphitunarhringnum og þurfti þar af leiðandi að ræsa síðastur. Ef hann hefði haldið honum í gangi þá hefði hann ekki lent í því að vera síðastur og láta hægfara bíla hægja á sér. Fyrir mitt leyti þá var Bernoldi í fullum rétti að halda DC fyrir aftan sig. En hvað var málið með þennan brautarstarfsmann sem var að veifa bláa flagginu? Ég verð samt að hrósa DC fyrir hversu greiðlega hann vék fyrir þeim bílum...
Svo eru það þessar gömlu góðu sem standa alltaf fyrir sínu: - Metropolis - Forbidden Planet - The Day The Earth Stood Still - Fantastic Voyage - Logan´s Run Frábærar myndir allt saman…
Ég hef margoft staðið mig að því að öskra á sjónvarpið til að leiðrétta vitleysuna í þeim félögum… Það er alveg ótrúlegt að þeir sem séu að lýsa þessu séu ekki að fylgjast betur með. Það var t.d. í Spánarkappakstrinum að Barrichello hætti keppni og svo stuttu seinna kom mynd af Schumacher í brautinni og þeir sögðu að það væri Barrichello…
Þær myndir sem að ég kemst í góðan gír með á flöskudegi eru Hot Shots (1&2). Þær eru þvílík snilld að það hálfa væri nóg… “You know, I've personally flown over 194 missions and I was shot down on every one. Come to think of it, I've never landed a plane in my life.” - Admiral Benson
Topp 10 listinn minn (í engri sérstakri röð): - Star Wars myndirnar (The Empire Strikes back fremst í flokki) - The Great Dictator (Chaplin) - Se7en - Back To The Future trílógían - Psycho (Hitchcock klassíkin ekki endurgerðin) - Bridge On The River Kwai - Matrix - Shawshank Redemption - Princess Bride - Fantastic Voyage
Þessi tækni heitir reyndar Time-slice og er búin að vera til í fjöldamörg ár. Það er ansi góð grein um manninn sem byrjaði með þessa tækni, Tim Macmillan á vfxpro.com http://www.vfxpro.com/article/mainv/0,7220,106346,00.html
Mér fannst þetta vera mjög góð mynd. Klippinging í henni var alveg brill og rosalega flott hvernig sum atriði voru “jump-köttuð”. Átti svo sannarlega skilið Óskarinn fyrir klippinguna. Flott mynd og vel leikin… Mæli með henni…
Skífan : 3) Skrifstofur þess eru fyrir ofan Tæknival í Skeifunni. ——————————- Reyndar eru skrifstofur Skífunnar fluttar upp á Lyngháls (þar sem Stöð 2 er). Þar er búið að sameina allt batteríið hans Jón$ Ólafssonar og heitir allur hrærigrauturinn núna Norðurljós…
Það er ekki spurning að Vader er einfaldlega laaang flottasti villain ever… Hver myndi ekki hræðast mann sem getur chokað einhvern úr mílu fjarlægð, talar með rödd sem hræðir alla sem heyra til, og er líka með þessa hrikalega scary bikarsvörtu grímu… Maðurinn er svo rosalegur að það þurfti 3 leikara til að túlka hann fyrir hvíta tjaldið…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..