Mun Indiana Jones lifa að eilífu? Mig langaði aðeins að spyrja þá sem vita mikið um Indiana Jones. Mun Indiana Jones lifa að eilífu? Ég var nefnilega að horfa á Last Crusade um daginn og í henni drekkur bæði Indiana og faðir hans úr bikarnum( holy grail) sem Jesús notaði við seinustu máltíðina. Á þá ekki Indiana og trúlegast faðir hans líka að lifa þá að eilífu. Er þá ekki kominn grundvöllur fyrir óteljandi Indiana Jones myndum.
Gæti þessi sería þá lifað áfram um ókomna tíð, jafnvel að það kæmi fullt af geimmyndum um Indiana Jones, þar sem hann leitar að ýmsum verðmætum munum á mismunandi plánetum. Hvað er annars að frétta af fjórðu myndinni, hvað á hún eiginlega að heita? Ekki á hún að heita þessu asnalega nafni sem einhver kom með hér um daginn. Hefur Harrison Ford eitthvað talað um fleiri myndir?.
Indiana Jones aðdáendur látið í ykkur heyra.

“Dont call me Junior”
-cactuz