Setti þetta á Star Wars síðuna líka en umferð þar er svo lítil þannig að ég setti þetta hér líka.

Jæja, nú eru komnar fréttir að Episode 1 kemur út á DVD seint á þessu ári fyrst allra Star Wars mynda. Þetta verður tveggja diska pakki og verður myndin á einum disknum en aukadótið á hinum. Það verður hægt að sjá 3 útgáfur af myndinni:1) Upprunalega útgáfan, 2) Upprunalega útgáfan en ekki með neinum tæknibrellum(Það er að segja að það eina sem maður sér er leikararnir og blár skjár), 3)Nýjum senum bætt við með fjölda nýrra tæknibrella sem ekki náðist að klára áður en myndin kom út.
Einnig verða mörg commentary og hljóð- og myndgæði verða að sjálfsögðu eins og best verður á kosið.
Á hinum disknum verður þetta venjulega aukadót eins og “gerð myndarinnar”, eyddar tökur og margt fleira. Þetta á að vera stærsta DVD opnun sem gerð hefur verið.