Svona nú, það þarf að vera a.m.k. SMÁ væmni í myndinni, enda var restin af myndinni bara drungaleg saga út í gegn, og mögnuð, bæti ég m.a.s. við. Hann Chris Columbus er þekktur fyrir að hafa myndirnar sínar sykursætar og væmnar, þannig að mér fannst alltílæ að hafa smá væmni í CoS, enda var það BARA í endanum. Annars fannst mér myndin sjálf vera hreint út sagt FRÁBÆR… og það er varla spurning um að PoA verði betri, enda miklu betri saga og leikstjóri þar ;) ……biðin verður erfið