LORDS OF THE SITH ER KOMIN ÚT!!!!!! Jæja loksins er búið að koma þessu á netið.

Á vefsíðunni www.starwarsx.tk er linkur til að downloada. Þið sem ekki hafið skoðað síðuna getið skoðað margt annað skemmtilegt eins og myndir sem teknar voru á tökustað og við vinnslu myndarinnar. Einnig er þar samanburður á upphaflegu tökunum og loka niðurstöðu.

Núna er QuickTime útgáfa(400*267, 179mb) komin. Vonandi verður DIVX útgáfan komin á morgun eða hinn.

Textinn sem stendur í byrjun myndarinnar er bara rugl, hann er langur og erfitt að skilja hann þegar skjárinn er svona lítill. Dialogarnir eru líka grín og ber ekki að taka alvarlega. Myndin átti upphaflega bara að vera eitthvað cool bardaga atriði og það breittist ekkert. Nema það að ég kom inn í myndina sem leikari og átti upphaflega ekki að vera. Ég fékk engan annan til að leika minn karakter því menn héldu að ég væri klikkaður. Það er kannski rétt.

Núna er ég strax byrjaður á næstu mynd sem verður tekin upp næsta sumar. Hún er númer eitt, þessi sem þið horfið á er númer 2.

Vonandi skemmta sér svo allir yfir þessu. Góðar stundir

WWW.STARWARSX.TK