Allir sem hafa hlustað á spurningarnar undanfarin ár og búa yfir almennri skynsemi vita að það er kjaftæði. Í fyrsta lagi eru spurningarnar á mjög breiðum grundvelli, úr sögu, tungumálum, dægurlífi, íþróttum, nýjustu fréttum, vísindi o.s.frv. Svo fjölbreytt að engin námsbraut í nokkrum framhaldsskóla bíður upp á kennslu í því öllu. Auk þess hafa keppendur MR liðsins komið frá mörgum mismunandi brautum í skólanum og eru því ekki að læra það sama. Í öðru lagi hafa verið margir mismunandi...