hæ, takk IceCat fyrir að svara greininni minni. Já hann kúkar í kassann sinn. Og ég held að hann sé bara að mótmæla þessari utanlandsferð okkar því að hann er svo háður okkur (eiginlega of mikið). Hann er svo mikil kelirófa og krútt ;) En í sambandi við geldinguna, þá sagði dýralæknirinn að það mætti ekki gera neitt við hann fyr en hann væri búinn að ná sér. Það er svoldið slæmt því að núna er hann einmitt á þessum kynþroska aldri og þá er rétti tíminn til að gelda þá.