Ef þetta er listinn yfir verstu myndir allra tíma þá væri ég til í að sjá listann yfir bestu myndir allra tíma. Ætli þar séu ekki myndir eins og Sugar & Spice ofarlega ásamt Good Burger, Jaws: The Revenge og fleirum. Annars er ég sammála með nokkrar myndir þarna eins og Battlefield Earth, Batman & Robin, The Postman og fleiri. En myndir eins og The English Patient, Godfather, Part III og sérstaklega The Thin Red Line eiga alls ekki heima þarna á þessum lista.