200$ milljónir á 12 dögum! Nýjasta myndin í Lord of the Rings seríunni, The Two Towers, hefur gert sér lítið fyrir og sópað inn hvorki meira né minna en 200$ milljónum á tæpum tveimur vikum.

Þá er hún ásamt Star Wars myndinni, Attack of the Clones sú fljótasta að ná yfir 200$ milljóna markið.

Nýjasta afurð Spielberg’s, Catch Me If You Can, heldur fast í annað sætið með $48 milljónir.

Vinsældir Harry Potter og Leyniklefans virðast fara dalandi því hún hangir í 8. sætinu með ‘aðeins’ $240 milljónir.