Sampla kvikmyndir Kvikmyndatímaritið Variety greindi frá því á dögunum að leikarinn Mike Myers og leikstjórinn Jay Roach(Austin Powers myndirnar,Meet The Parents) séu að vinna að mynd saman sem samanstendur af brotum úr öðrum myndum(sampla). Þetta er eitthvað sem þekkist í tónlist að stela bútum frá öðrum lögum en þetta hefur aldrei verið prófað með kvikmyndaformið. Það er Dreamworks fyrirtækið sem styður þá kumpána í þessari kvikmyndatilraun.

Þeir ætla sem sé að taka búta úr allskonar myndum og reyna að búa til nýja heild úr þeim. Hvernig þeir ætla að fara að þessu veit enginn. Það hefur ekki verið gefið upp úr hvaða myndum þeir ætla að fá lánuð myndbrot og hefur í raun lítið verið gefið upp um þessa væntanlegu mynd annað en þessi aðferð. Þetta gæti orðið ein hlægilegasta tilraun kvikmyndasögunnar eða þetta gæti verið tímamótahugmynd. Ég myndi giska á það fyrrnefnda frekar en hitt. Það verður fróðlegt að sjá útkomuna á endanum. Hvernig líst fólki á þessa furðulegu hugmynd?