Heyrðu væni, ég mun bara éta mitt skyr. Þetta er þræhollt og gott, að mínu mati, og ég tel árangur minn, hvað vöðvastærð og krafta varðar, koma frá því að borða skyr ásamt stífum æfingum. Ég borða skyr um tvisvar til þrisvar (misjafnt) á dag. Það gerir ég ásamt því að fá mér próteinduft. Sá fjári er bara svo helvíti dýr að ég tími því ekki að drekka 2-4 brúsa af því á dag. Þar að auki á ég ágætan vin sem er fyrrverandi vaxtarræktartröll (ekki steramaður) og hann segir skyrið sinn vin. Hvað...