Ég er sammála því að þú verðir að tala við hann. Því fyrr því betra, og notaðu ráðið frá gromit að skrifa hjá þér það sem þú ætlar að segja við hann. Og ef þú getur ekki sagt það við hann réttu honum þá bréfið og láttu hann lesa það fyrir framan þig. Það virkaði hjá mér. Ég þekki það líka að vera komin í sambúð og búin að eignast, ekki bara 1 heldur 2 börn, og var mjög óhamingjusöm. Afþví við gátum ekki talað saman. Ég óska þér gæfu og gengis. Baráttukveðjur, Sheena