Jæja þá er loksins komið að því. Ég er orðinn pabbi!!!!!!
Í gær fæddist strákur(strákurinn minn)í þennan heim, 16 merkur og 55 cm(fallegasta barn sem ég hef nokkurntíma séð!!!!).
Þvílík lífsreynsla!!!!!! Að horfa á barnið, sem er búið að vera inni í maga móður sinnar svona lengi, koma út er án efa það yndislegasta(það er því miður ekki til sterkara lýsingarorð)sem maður lendir í á lífsleiðinni. En hvílíkar þjáningar. Ég leyfi mér að efast um að við strákarnir gætum umborið slíkar kvalir.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni enda í nógu öðru að snúast.
Bless, bless öllsömul.