Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Tölvuvirkni með góða þjónustu!

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, þessi verslun hefur fengið mikið lof, og ég hef reynslu að því að versla þar, alger snilld, það eru allavega mjög litlar líkur ég fari að skipta við eitthvað annað fyrirtæki. Þessar greinar sem hafa komið segja sína sögu.

Re: TV Out vandræði!!!!

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
EF þú ert með S-video tengi á kortinu, sem sagt 4-pinna tengi að þá geturðu keypt svoleiðis snúru í flest öllum búðum, svo tengirðu hana bara við sjónvarp, og ef sjónvarpið er ekki með s-video tengi að þá notarðu bara scart tengi sem milliveg, og stillir svo Video-out á Composite svo myndin sé ekki svarthvít. Hins vegar ef það er RCA tengi(1 pinni og gat á hinum endanum.) að þá tengirðu það líka í scart ef það er ekki svoleiðis tengi á sjónvarpinu. Þarft held ég ekkert að breyta stillingum...

Re: Uppkast að nýrri Deildarkeppni

í Battlefield fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það væri alger snilld ef þessi keppni yrði sett af stað. Hafa deildina langa…..meiri spenna. [EASY-PVT]Woody

Re: Opið bréf til menntamálaráðherra

í Linux fyrir 23 árum, 1 mánuði
Flott bréf, vonandi mun þetta hafa einhver áhrif.

Re: Hverju eigum við von á um næstu jól????????

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég held að þetta megi nú alveg vera hér :) Þetta eru mjög eigulegir gripir, sérstaklega Matrix 2, T3 og auðvitað extended version af Two Towers….snillld. Fín grein.

Re: Mínimót 1|2003 - Tímasettningar og Kort.

í Battlefield fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Geðveikt, djöfull er ég farinn að hlakka til. [EASY-PVT]Woody

Re: Josie and the Pussycats (2001) Ojjjjj!

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég gat að minnsta kosti hlegið mig máttlausan yfir Freddy Got Fingered, Tom Green er hálfviti en það er bara fínt, allavega hægt að hlæja að honum stundum. Ég veit ekki hvort ég telst vera með sick húmor en fílaatriðið og hestaatriðið var virkilega fyndið. PS. Ég hugsa að Seth Green hafi skammast sín fyrir að hafa leikið í þessari mynd og látið taka sig úr credit listanum.

Re: Viðgerðapallar

í Battlefield fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvað með Tigerinn og Russia skriðdrekann gula, man ekki hvað hann heitir, hvernig er maður fljótastur að eyðileggja þá?

Re: Skóli of þungur stundum.

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Vá, hvað það er búið að rakka þig niður Bahamuth :) Ég er sammála flestum, verð samt að viðurkenna að mér finnst þessi 3.önn sem ég er á helvíti erfið, 2 fög allavega(STÆ303 og FOR303). Ég er ekki mikill heimanámsmaður og kenni sjálfum mér um. Ég á nú bíl og er í lítilli vinnu sem dugar ekki fyrir afborgunum og verð alltaf að fá smá pening hjá foreldrum svona að mánaðarmótum. Í flestum löndum eru nemar ekki í peningavandamálum í framhaldsskólum. Veit nú samt ekki hvort bíleignir séu mjög...

Re: Sannleikurinn um Britney Spears

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Vá, hvað það virðist vera hægt að tala mikið um þessa manneskju. Flott grein.

Re: Hitman 2 búinn

í Tölvuleikir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvaða rugl er í gangi….það eru búnar að koma tvær fáránlegar “greinar” um Hitman 2. Held að adminarnir ættu að hugsa sig aðeins um.

Re: Hitman 2: Silent Assassin (XBOX)

í Leikjatölvur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
“Þú ert búinn með leikinn en samt getur þú fullyrt að leikurinn er eilífur. Hmmmm………”. Þú ættir kannski að lesa greinina aðeins betur því þar segir að það sé hægt að spila leikinn á marga vegu, sem ég er sammála. Þessi leikur er alger snilld og mæli eindregið með honum.

Re: Segðu frá fyrsta árekstrinum þínum!

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jæja, ég hef nú lent í mínum fyrsta árekstri, ég póstaði hérna um daginn hve nálægt ég hef komist en núna gerðist það. Ég var á mótum suðurlands- og vesturlandsvegar og fór aftan á bíl, beint í dráttarkúluna hans. Framendin hjá mér fór nú ekki vel úr þessu…..stuðarinn er handónýtur en húddið slapp, vatnskassinn hjá mér beyglaðist aðeins en ekki er að sjá að hann sé skemmdur, eitt framljósið og grillið er einnig ónýtt. Hin bíllinn slapp sem betur fer nokkuð vel en það þarf aðeins að mála...

Re: 900 mb cdr

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Creative CDRW8432E.

Re: 900 mb cdr

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Minn skrifari skaddaðist við að skrifa svona disk og á nú í erfiðleikum með að klára að skrifa.

Re: 8310

í Farsímar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er ótrúlegt hvað maður heyrir oft slæma hluti um Hátækni. Ef þú borgaðir fyrir þessa “viðgerð” að þá skaltu kvarta og fá peninginn aftur. Farðu svo bara aftur þangað sem þú keyptir símann og skiptu, þ.e.a.s. ef þér finnst ómögulegt að að þú getir ekki fengið sms myndir úr tölvunni. Hvaðan ertu annars að fá þessar SMS myndir?

Re: Segðu frá fyrsta árekstrinum þínum!

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég rispaði einu sinni bíl þegar ég var að bakka úr innkeyrslu. Það er það eina sem ég hef lent í, hef verið nálægt því að lenda í árekstri, ca.1cm á milli mín og annars bíls eftir langa nauðhemlun :)

Re: Long Time Dead (2002)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fór á hana í bíó og hafði gaman af, mér brá tvisvar þrisvar, alltaf jafngaman að verða brugðið í bíó.

Re: C&C

í Herkænskuleikir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Við verðum bara að vona að Command & Conquer: Generals verði flottur.

Re: Grand theft Auto 3 í Pc ... Galli eða .....

í Tölvuleikir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er með ágætis tölvu, en eftir svona mínútuleik að þá byrjar hann að hiksta all skuggalega. Hljóðið virkar alveg fínt áfram en leikurinn ekki. Hlýtur að vera galli í leiknum.

Re: Bíóferðir: skemmtun/leiðindi

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég lenti einmitt í því að það var einhver lítill krakki sparkandi í sætið hjá mér, ég var næstum því búinn að flippa og rota hann, en ég talaði við pabba hans í hléinu :) Hann var eins og skítur.

Re: Long Time Dead (2002)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er alveg ágætis mynd, gaman af henni í bíó.

Re: Sci-fi myndir og Ekki-Sci-fi myndir.

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fín grein en athyglisvert að þú þýðir Mad Scientist sem Brjáluð vísindi í staðinn fyrir brjálaður vísindamaður. Ég býst nú samt við að þetta hefði átt að vera mad science :) Eitt enn, afhverju flokkaðirðu Planet of the Apes sem “Geimverur úti í geimnum” fyrst þú vissir að þetta gerðist á jörðinni, gastu ekki bara sett þetta í “Geimverur á jörðinni” flokkinn? Það er nú reyndar órökrétt líka því að þetta voru ekki geimverur.

Re: Teaser fyrir Matrix framhöldin er kominn!

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Notið “háhraða” frekar.

Re: The Majestic (2001)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hvað er þetta með þig og stóra stafi?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok