Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
… einmana, á ég ekki að hjálpa þér að koma þér til vina þinna?

Re: Aðdáendaskáldskapur!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst það einmitt vera svona sem fanfic eiga að vera, um aðrar persónur (jafnvel á öðrum tíma) sem tengjast ekki endilega Harry Potter, svo það er ekki mögulegt að rugla saman því sem gerist í bókunum sjálfum og því sem maður hefur lesið í einhverri fanfic. Sögur úr sama heimi, sem skipta söguþráð HP bókanna engu máli en passa samt alveg inn í (hvað varðar öll svona smáatriði og reglur þessa heims) og gætu alveg hafa gerst líka samkvæmt bókunum þó þær segi ekkert frá því.

Re: Fanfic

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Úps, skrifaði þetta óvart við vitlausa grein… Þ.e.a.s. þetta “Mér finnst það einmitt vera svona sem fanfic eiga að vera, um aðrar persónur (jafnvel á öðrum tíma) sem tengjast ekki endilega Harry Potter, svo það er ekki mögulegt að rugla saman því sem gerist í bókunum sjálfum og því sem maður hefur lesið í einhverri fanfic. Sögur úr sama heimi, sem skipta söguþráð HP bókanna engu máli en passa samt alveg inn í (hvað varðar öll svona smáatriði og reglur þessa heims) og gætu alveg hafa gerst...

Re: Foreldrar Harrys, duh, spoiler!!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sammála þér með Lupin, hann er eitthvað svo hlýlegur. Og já, Snape óx verulega í áliti hjá mér, ég var meira að segja að vona að Harry myndi biðja hann innilega afsökunar og Snape myndi linast nóg við það til að gefa Harry sanngjarnar einkunnir í potions, og þeir yrðu almennilegir hvor við annan. Það væri samt dálítið skrýtið, því þetta er orðinn svo rótgróinn hluti af þessum bókum, hatrið á milli Harry og Snape.

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
… og sagði: Leyfðu Dursley hjónin þér VIRKILEGA að panta þér pizzu??? Má ég fá líka? Nei djók, sorry, en finnst ykkur það ekki dálítið ólíklegt? Og ekki á Harry mikið af muggapeningum sjálfur… Þetta er kannski bara óþarfa smámunasemi í mér. Ég skal reyna að finna betra framhald á efti

Re: Draumaloginn (fanfic fanfic)

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er bara ágætis saga, nú þarf Harry bara að finna gylltan einhyrning, fá hann til að gráta og lækna foreldra Nevilles (hvað heita þau aftur, Frank og Alice?)

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Reyndar var hann farinn að undrast af hverju þau voru ekki komin heim, en hálft í hvoru vonaði hann að þau hefðu…

Re: Fanfic

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst það einmitt vera svona sem fanfic eiga að vera, um aðrar persónur (jafnvel á öðrum tíma) sem tengjast ekki endilega Harry Potter, svo það er ekki mögulegt að rugla saman því sem gerist í bókunum sjálfum og því sem maður hefur lesið í einhverri fanfic. Sögur úr sama heimi, sem skipta söguþráð HP bókanna engu máli en passa samt alveg inn í (hvað varðar öll svona smáatriði og reglur þessa heims) og gætu alveg hafa gerst líka samkvæmt bókunum þó þær segi ekkert frá því.

Re: Aðdáendaskáldskapur!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ok, þá er ég sáttur ;)

Re: Fanfic

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Er það bara ég eða fara “fanficin” batnandi á þessu áhugamáli?

Re: Aðdáendaskáldskapur!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
"þá getur þú kannski fengið far með nemendum úr Howarts í skólann.” Fá far? Þau labba bara… En annars er þetta mjög skemmtileg saga

Re: Léleg blaðamennska!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er sammála því að það þarf að drekka töfradrykki til að þeir virki, en ég held að sullið í pottinum í kirkjugarðinum hafi verið hluti af öflugri galdri sem þurfti ákveðin hráefni í, en ekki bara töfradrykkur. Ég held að þetta hafi verið einhvern veginn annars konar töfraseyði sem gegndi öðru hlutverki, ég meina af hverju þurfti hann annars að vera sjálfur í pottinum? Hefði ekki verið nóg að Pettigrew hefði bara hellt smá af seyðinu í bolla og hellt því ofan í “barnið”?

Re: Léleg blaðamennska!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
“þessi grein” átti þetta nú að vera…

Re: Léleg blaðamennska!

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já ég er sammála, þetta grein (í fréttablaðinu sko) skemmir fyrir þeim sem hafa ekki lesið frekar en að vekja áhuga held ég. Ég er hins vegar ósammála sumu í ofanverðri grein: Nemendur og starfsfólk eru náttúrulega dvalargestir því þeir dvelja þarna yfir veturinn. Ég man ekki betur að í íslensku þýðingu bókarinnar hafi það verið kallað að fórnarlömbin hafi verið steingerð (var það ekki petrified á ensku?), svo mér finnst allt í lagi að segja að þau hafi breyst í stein (það var bara hægt að...

Re: Spurningaleikur

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gaman að fá svona spurningar til að hrista aðeins upp í minninu. Mér finnst eitt af því skemmtilegasta við þessar bækur hvað öll smáatriði passa vel saman og maður tekur síður eftir því ef maður er ekki með þau ágætlega á hreinu, svo mér finnst gaman að pæla í smáatriðum eins og þessum þó þau skipti svosum ekki miklu máli. Ég ætla að spreyta mig eftir minni: *GALDRAR* 1.Man það ekki, (var það Dissendium, eða var það til að þurrka út Ræningjakortið?) 2.Úff man það ekki heldur, 6. eða 7. ári...

Re: Rafael Raven 2.kafli, Bréfið

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er virkilega skemmtileg saga, vel úthugsuð, og áhugaverð. Gaman að pæla í því hvernig það er fyrir aðra nemendur skólans að fá bréfið og svona, einfaldlega skemmtileg saga. Stafsetningarvillur í minni kantinum líka

Re: Dularfulla kertið - Part 2

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já, ég veit, tæknilega séð ætti hann þá ekki að geta næstum drepið Voldemort með henni, en þá myndi honum heldur ekki detta í hug að reyna það. Fyrst hann reyndi gerði ég ráð fyrir að hann væri búinn að læra að gera hana eða eitthvað (þetta er náttúrulega fanfic), svo að ég svaraði út frá því. Annars skil ég það þannig að ef maður kann ekki að framkvæma hana þá kann maður það ekki og það þýðir ekkert að reyna en ef maður kann hana þá tekst það, ekki að það sé eitthvað svona millibil, þar sem...

Re: önnur útgáfa af Fönixreglunni

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já, ég er búinn að lesa fyrstu þrjá kaflana eða svo (held við séum að tala um sama hlutinn, heitir ekki fyrsti kaflinn “The trip” eða eitthvað þannig?) og ég á bágt með að trúa að þetta sé uppkast hennar að bókinni því að, í fyrsta lagi, þá er þetta ALLT öðruvísi en bók fimm (að minnsta kosti byrjunin) og í öðru lagi þá fannst mér vera allt annar stíll á þessu, eins og skrifað eftir einhvern sem er ekki frá enskumælandi landi (jafnvel Íslandi) og ekkert allt of góður í enskri málfræði og...

Re: Dularfulla kertið - Part 2

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Harry og Ron eru alltaf með sprotana á sér, þeir þurfa ekki að fara upp í heimavist að ná í þá, og Avada Kedavra drepur alveg, ekki næstum því. Annars er þetta mjög flott saga.

Re: Smá pæling.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Og já, ég gleymdi að svara því, að Delgome húsið á íslensku er Riddle húsið á ensku, já.

Re: My first fanfic - Dularfulla kertið

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Manstu þegar Harry og co. fóru í fyrsta tímann til Snape í fyrstu bókinni, þá var hann einmitt að spyrja Harry einhverra svona spurninga og draga stig af Griffindor því hann vissi það ekki.

Re: My first fanfic - Dularfulla kertið

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
“Þögn”, sagði Snape skipandi röddu.“Fyrir þá sem ekki vita”, sagði hann og horfði á ala Gryffindor krakkana, “þá eru þetta 2 orð yfir sömu plöntuna”. Þetta er næstum tekið beint upp úr fyrstu bókinni, bara önnur nöfn og þar voru þrjú nöfn yfir sama hlutinn. En þetta er svosem ágæt saga.

Re: Smá pæling.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mig minnir að Voldemort hafi sagt Harry það í kirkjugarðinum, að faðir hans hafi farið aftur til foreldra sinna eftir að hann komst að því að móðir Voldemorts væri norn og yfirgaf hana.

Re: Smá pæling.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nei, það var tekið fram í byrjun fjórðu bókarinnar að Riddle hjónin og UPPKOMINN sonur þeirra hefðu fundist dauð, hann var fullorðinn en bjó hjá foreldrum sínum, mig minnir meira að segja að það hafi komið fram að hann hafi flutt aftur inn til þeirra eftir að hann yfirgaf konuna sína

Re: Natural-Selection v2.0

í Half-Life fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hah, já ég segi það, veistu hvað lerk er? Ætli þú fallir nokkuð undir þennan hóp fólks sem nefndur var hér að ofan og á það sameiginlegt að prófa leikinn í fimm mínútur, gefast upp og úrskurða hann leiðinlegan? Ef svo er, prófaðu þá að spila hann í klukkutíma eða lengur eftir því sem þú þarft til að fatta út á hvað hann gengur og hvernig á að spila hann, ef þér finnst hann ennþá leiðinlegur þá, þá máttu alveg halda því fram að þér finnist hann leiðinlegur án þess að ég ætli neitt að skipta...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok