ég fann útgáfu sem ég hélt að væri rétta útgáfan af fönixreglunni á netinu fyrir um 2 mánuðum. Ég las þetta og mikið rétt, bókin var u.þ.b. 800 bls. og það dó t.d einn karakter í henni svo ég hélt að þetta væri alvöru dæmi. Það voru stafsetningavillur og ýmislegt sem gaf til kynna að þetta væri óritskoðað handrit af alvöru bókinni. En svo þá er ég auðvitað búin að kaupa og lesa HP 5 og sé núna að þetta er alls ekki rétt bók en mig langar að vita hvort fleiri gerðu þetta og vita kannski meira um hvort þetta er fanfiction í 1. klassa eða uppkast JKR af bókinni.


látið mig vita