Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þegar ég skrifaði: “Þú manst eftir…” þá var ég nú meira að hugsa um einhvern sem Harry þekkir minna og helst einhver sem Harry hefði ekki dottið í hug að væri vondur, það þarf nú ekki að spurja hann hvort hann muni eftir Snape… Er ykkur sama þó að ég breyti því þá bara og láti Lupin segja: “Harry, Snape hefur gengið aftur í lið með þú-veist-hverjum. …”? En hér er enn ein samantektin, með leiðréttingum Harry átti erfitt með að sofna. Hann hlakkaði svo mikið til að hitta Ron og Hermione og að...

Re: Sá sem dó -SPOILER-

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Annars er ég reyndar ekki alveg viss hvort þú varst að segja að það væri þannig eða öfugt, það var eins og þú værir ekki alveg viss sjálfur…

Re: Sá sem dó -SPOILER-

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei Amon, það segir ekki í spádómnum að báðir þurfi að deyja. “Neither can live while the other survives” þýðir að þeir geti ekki báðir lifað, það þýðir ekki að hvorugur geti lifað án hins… Þetta er eins og einhver sagði hér að ofan, “end in murder” þýðir að Voldemort drepi Harry (líf Harrys endar með morðinu á honum sem Voldemort fremur) og “include a murder” þýðir að Harry drepi Voldemort (líf Harrys inniheldur morðið á Voldemort sem hann fremur). Mér finnst það allavega vera frekar skýrt....

Re: Týndi Spádómurinn (Spoi...)

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei, ég það getur ekki verið að Neville sé jafningi hans, því hann “merkti” Harry, en ekki Neville. “…and the Dark Lord will mark him as his equal…” Þegar Voldemort reyndi að drepa Harry, þá “merkti” hann hann með örinu í staðinn fyrir að drepa hann. En hins vegar er reyndar ekki tekið fram í spádómnum (a.m.k. ekki ef brotið sem er birt í þessum korki er allur spádómurinn, ég man það ekki alveg) hvenær Voldemort muni merkja jafningja sinn, þannig að það gæti verið að hann eigi eftir að gera...

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Úff, ég var næstum klukkutíma að gera þessa samantekt (þurfti reyndar að skreppa dálítið oft frá), svo síðustu tvö svörin á undan henni voru ekki komin

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þá (og með örlítið meiri lagfæringum) væri samantektin svona: Harry átti erfitt með að sofna. Hann hlakkaði svo mikið til að hitta Ron og Hermione og að fara aftur í Hogwartsskóla. Hann bylti sér í rúminu. Smá innskot, þetta var svona: “Hann bylti sér við í rúminu” en er það ekki annaðhvort “hann sneri sér við” eða “bylti sér”? Ég held það sé vitlaust að segja “bylti sér við”, eða er það bara vitleysa í mér? Jæja, áfram með samantektina: Hann var einn í húsinu af því að Dursley fjölskyldan...

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei, nei, Lupin sagði ekki þetta með að Harry væri kominn í Hreysið, annars hefði Harry tekið eftir honum, og ég held að við ættum að sleppa þessarri setningu með að þetta gæti hafa verið drápari og láta það hafa verið “Marius Tobias” sem réðst á hann, eða eitthvað þannig, ef þeim sem skrifaði að þetta hefði verið drápari er sama.

Re: könnun???

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er verið að tala um könnun þar sem einn svarmöguleikinn er: Ekki innskráður. Þeir voru ekkert að reyna að taka þátt í könnun án þess að vera innskráðir, enda það ekki hægt

Re: Strákur sem líkist harry potter?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er með eldingalaga ör, reyndar á nefinu milli augnanna, það er a.m.k. pínulítið eins og elding í laginu, en það er frekar lítið og ógreinilegt. Ég fékk það þegar ég var að æfa mig að halda jafnvægi á meðan ég labbaði yfir hjólastæðagrind, en missti jafnvægið og datt beint á hausinn

Re: Lokaárið - FanFic

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hah! Arthur galdramálaráðherra! Snilld. Ágætis saga og vel skrifuð. Ég ráðlegg þér samt að breyta þessarri setningu: “Hann hafði komið Harry til bjargar nokkrum vikum áður þegar Dudley og nokkrir vinir hans höfðu lamið hann svo illa að hann hafði ekki geta staðið upp og sagt honum að hann geymdi alltaf Bjargaröllu-lyf í vasanum.” í annaðhvort: “Hann hafði komið Harry til bjargar nokkrum vikum áður og sagt honum að hann geymdi alltaf Bjargaröllu-lyf í vasanum þegar Dudley og nokkrir vinir...

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Harry minn, ég veit eiginlega ekki hvernig við eigum að segja þér þetta…” sagði Molly, en Sirius greip fram í fyrir henni, “hann verður að fá að vita það, auk þess að hann kemst hvort eð er að því fyrr en varir.” Þá tók Lupin til máls - Harry hrökk við, því hann hafði ekki veitt honum eftirtekt þar sem hann sat þarna úti í horni - "Harry, þú manst eftir…

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eða þá að hafa bara bæði og láta Harry segja næst: “Afsakið, á ekkert að svara manni hérna?” Sirius og Molly litu vandræðalega hvort á annað…

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nú jæja, Marius Tobias gerði svo bara það sem hann sagðist ætla að gera eftir allt saman, hjálpa mér að komast til vina minna. Ég væri líklega ekki hér ef hann hefði ekki komið. En hver var hann þá, fyrst hann er ekki sonur frú Figg? Og hvað gerðist? Hver lagði kvalabölvunina á mig?

Re: Rafael Raven 3.kafli, Gringottbanki

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já ég er fullkomlega sammála inguausu. Þetta er langbesta fanfic sem ég hef lesið hér á huga. Þetta er vel útpælt og skemmtilegt plott, ég hlakka mjög til að lesa framhaldið

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hah! Ron og Hermione!? Það er nebbla það! Þau sem eru alltaf að rífast, alveg eins og ekta hjón. Ojæja, mig var svosum farið að gruna þetta eftir jólaballið. En hvað með Krum? Jæja, ég spyr þau bara sjálf þegar ég hitti þau.

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hvar er Ron, spurði hann?

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Úps, ég byrjaði að skrifa þetta svar áður en hitt kom og þurfti að skreppa aðeins frá áður en ég kláraði það svo það er smá ósamræmi

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nú þá gerði Marius Tobias það sem hann sagðist ætla að gera eftir allt saman, hjálpa mér að komast til vina minna. En hver var hann þá, fyrst hann er ekki sonur frú Figg? Og hvað gerðist? Hver lagði kvalabölvunina á mig?

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Hvernig komumst við hingað?” “Fljugandi,”svaraði Sirius, "við bundum koffortið og búrið hennar Hedwig við kústa Lupins og Skröggs og svo sátum við tveir á þínum, því ég á ekki kúst og þú varst meðvitundarlaus.

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Hvar erum við?” “Heima hjá okkur væni” svaraði frú Weasley

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eitt af því fyrsta sem hann áttaði sig á, var að hann gat ekki áttað sig á miklu án þess að spyrja spurninga…

Re: spoiler... sá sem deyr

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já það var rautt, auk þess að ef hún hefði notað Avada Kedavra þá hefði samt líkið legið efti

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hann féll niður á hnén og reyndi að snúa sér við til en gat ekki hreyft sig fyrir sársauka…

Re: Draumaloginn (fanfic fanfic)

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
(Frekar saklaus SPOILER úr fimmtu bókinni) En vá hvað þessi kennari væri Lunu Lovegood vel að skapi…

Re: Fanfiction leikurinn.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 10 mánuðum
…sem Harry staðnæmdist, því hann mundi allt í einu eftir að hann hafði gleymt öllum eigum sínum (nema sprotann sem hann bar að sjálfsögðu á sér).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok