Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

radical
radical Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
588 stig

Re: Hvað er fólk að spá?!?

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Jú.. það er ennþá þannig en þeir sem eru að búa til þetta CSHP eru að vinna í að búa til endanlega lausn á þessu dæmi. Það er samt smá tími í að það verði. En það þýðir ekki að allir eru óhulltir. Þótt það komi nýr aimbot þá bregðast þeir hjá CSHP svo fljótt við að það er komin ný útgáfa oft næsta dag… fólk sem stundar simnet verður bara að spyrja sig hvort það vilji taka áhættuna… því við getum uppfært CSHP hvenær sem án þess að láta neinn vita.. og þegar það gerist og einhver er með aimbot...

Re: George W. Bush tilvitnanir

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
þetta er náttúrlulega argasta snilld.. hversu mikið bull getur ollið upp úr einum manni? friður potent

Re: Sígarettur, arrrrgh

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Jamm, feitt fólk er baggi á velferðarkerfinu. Á ég að þurfa að borga undir einhvað feitt rassgat af því því finnst “gaman” að éta mikið? potent ;-)

Re: Sæperinn!

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
haaaa????? er ekki allt i lagi? það er ekki hægt að taka eitt vopnið úr leiknum.. hann er hluti af öllum pakkanum, svona er þetta bara, sættu þig við það. potent

Re: Júróvision eftirhúgleiðingar

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Skulum ekkert vera að flækja hlutina of mikið, þetta er ekki flókið. Þetta lag, hvað sem það heitir, var bara hreint út sagt ömurlegt. Mér fannst það ömurlegt þegar ég heyrði það fyrst, fannst það jafn ömurlegt þegar ég heyrði það aftur.. og það hélt þessum ömurlegu gæðum alveg fram að og í keppninni.. og mér finnst það ennþá ömurlegt. Þeir sem greiddu atkvæði í Evrópu fannst það líka ömurlegt og þetta ömurlega lag endaði í síðasta sæti. Og það er náttúrulega ömurlegur árangur en við hverju...

Re: Svipta menn tóbakssöluleyfi?

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það á að svifta staði leyfi ef þeir brjóta lögin og selja tóbak til einstaklinga undir aldri. Til hvers erum við að setja þessi lög á annað borð ef enginn ætlar svo að fara eftir þeim. Það má svo deila um það hvort það eigi að banna tóbak. Fyrir mitt leiti vill ég ekki að tóbak sé bannað. Það er óhollt að reykja og það getur skaðað aðra. En er rangt að reykja? Ætlar einhver að segja mér það að ég sé að gera einhvað siðlaust með því að reykja? Það er verið að henda reykingafólki út í kuldann...

Re: Örstutt kynning á Unreal Tournament

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þið eruð allir snillingar, það er enginn spurning. En endilega munið að taka lyfin ykkar. Mr. WuTangThis hefur gaman að því að tala um ekki neitt og enn meira gaman af því þegar fólk svarar honum. Mér aftur á móti þykir gaman að kasta eldivið á eldinn og vonandi heppnast það í þetta skiptið. Lifið heil potent

Re: Er jákvæð mismunum réttlætanleg?

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hæfasti einstaklingurinn í jobbið, það er jafnrétti hvernig sem á það er litið. Að taka einhvern framyfir bara vegna þess að hann tilheyrir minnihlutahóp er bull og vitleysa að mínu mati. friður potent

Re: hugleiðingar um fíkniefni

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Fara Íslendingar eftir áfengis og tóbaks takmörkunum?: nei Er fræðsla um áfengi, tóbak og eiturlyf góð á Íslandi?: nei Er þetta á einhvern hátt tengt? :já að sjálfsögðu. Ég vill ekki lögleiða cannabis til að gera það minna spennandi, ég vill lögleiða það útaf því að ég tel að það sé ekki eins hættulegt og fólk vill meina, og ég vill meina að fólk hafi beinlínis gott af því að nota þetta efni ef það er notað rétt. Og ég tel líka að það muni minnka framboð á öðrum margfalt sterkari efnum á...

Re: geimverur

í Húmor fyrir 24 árum, 11 mánuðum
snilld :P

Re: The Matrix Reloaded

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Leikur Keanu ekki í bæði 2 og 3? Ég hélt að það væri búið að ganga alveg frá því dæmi og að hann fái 30 millur fyrir báðar mydninar.. ef þetta er einhver della í mér endilega leiðréttið mig. potent

Re: hugleiðingar um fíkniefni

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Af hverju er það fáránlegt að leyfa kannabis? Ef það yrði leyft þá myndi notkun á hörðum efnum á borð við kókaín, spítt, E, LSD og fleirum minnka umtalsvert. Og það eru þessi efni en ekki kannabisefnin sem eru að leggja líf fólks í rúst. Á meðan þessi efni eru öll sett undir sama hatt þá mun fólk líta á þau með sömu augum s.s “eitur sem drepur fólk” og það er hreinlega ekki rétt. Ef hass og E er “jafnslæmt” af hverju ekki að nota bara E ef maður fær ekki hass? Svona hugsar mikið af fólki...

Re: Nokkrir punktar og andsvar við öllu.

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það mætti segja það sama um rocket/redeemerlaunching. Það er nefnilega líka hægt að gera það og það fattaðist bara óvart geri ég ráð fyrir. Eigum við ekki allir að nota það líka? Það væri örugglega mjög skemmtilegt og þar sem það er bara hluti af leiknum þá er það allt í lagi… er það ekki annars? Ég veit bara að ef að þessi trick, og leiðindatrick að mínu mati, verða notuð þá mun UT hreinlega leggjast af hér á landi og ekki þarf mikið til. Ég veit það allavega að ég myndi ekki nenna að spila...

Re: Nokkrir punktar og andsvar við öllu.

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Nú kann ég að window droppa og kenndi það mörgum til að opna huga fólks fyrir því hvað er hægt og hvað ekki. En ég er samt á móti því að þetta sé notað í leik. Er ég þá tapsár? potent

Re: Laptop

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hvernig vél er þessi 1GHz vél? Ekki kaupa ferðavélar sem heita eftir hægðalyfjum ;-)

Re: ADSL, PC & MAC

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Allir iMaccar frá byrjun hafa verið með 10/100 netkort innbyggt. Til að tengja báðar tölvurnar við ADSL hefurðu um tvennt að velja: 1. Nota pésann sem softrouter. Þetta er ok-if-it-works lausn. Þetta hefur líka marga ókosti í för með sér a) það er afskaplega auðvelt, fyrir þá sem langar til þess, að brjótast inn í windows (og reyndar linux líka) b) ef windows krassar (and believe you me, windows crashes) þá dettur nettengingin niður c) ef þú þarft að gera við vélina/bæta við vélbúnaði/spila...

Re: ±TbF±-AIvs~H2O~

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég er til í 8on8 match.. að vísu var talað um að leikurinn hefði átt að vera í gær og ég trúi ekki öðru en við getum fundið einhvern annan tíma fyrir þetta… the bunny

Re: Eiturlyfin öll !

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég held frekar að við ættum að setja okkur raunhæf markmið. Markið til lengri tíma. Alveg eins og með því að fá bjór og léttvín í búðir leiðir ábyggilega til lægra verðs þá þarf það ekki að þýða að allir drekki sig fulla alla daga. Neyslan mun líklegast aukast einhvað fyrst um sinn en svo kemst jafnvægi á hlutina. Fyrir utan það að eins og þú segir þá er kannabis neysla í hófi ekki talið hættulegt (reyndar frekar talið hollt heldur en hitt) alveg eins og með áfengið. Hins vegar er hægt að...

Re: Eiturlyfin öll !

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ef að ríkið eða einhver annar löglegur aðili selur cannabis efni hér á landi og sér til þess að það sé nóg til þá leitar fólk minna í hin efnin sem eru mun sterkari og hættulegri. Dópsalar myndu sjá það flótlega að það borgaði sig hreinlega ekki að standa í þessu og öll neysla á hörðum efnum myndi minnka. Með því svo að kynna almennilega hættur cannabis efna (sem er ekki mikið ef marka er ýmsar rannsóknir) og hreinlega útrýma hættunum ef efnið er tekið rétt inn. malkav sagði hér fyrir ofan...

Re: Meir um fíkniefni.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Fólk segir að hass sé stökkpallur í sterkari efni.. það er rétt og það er ekki rétt. Málið er að það borgar sig ekki að flytja mikið af hassi til landsins. Það lyktar mikið, er fyrirferða mikið og það er ekki mikill gróði af því miðað við áhættuna. Aftur á móti eru hin efnin eins og kókaín, e-pillur og svo framvegis, miklu ábótasamari fyrir dílerana. Málið er að oft eru þessir svokölluðu “þurrkar” (skortur á hassi) oft viljandi gerðir. Það er til þess að geta boðið upp á hin efnin sem eru...

Re: Eiturlyfin öll !

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þessi samantekt var nokkuð góð, ég hef ekki séð neitt sem sýnir með jafn góðum rökum úr “hinni áttinni”. Endilega láttu okkur hin vita hvar það er að finna malkav. potent

Re: Lögleiðing fíkniefna á Íslandi?

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég reyki stundum cannabis efni og finnst bara ekkert að því. Hinsvegar hef ég lent í því að þegar ég hringi í “dílerinn” minn þá er ekki til neitt að reykja og hefur mér verið boðin önnur, sterkari, efni í staðinn, eins og kókaín, e-töflur og fleira. Ég gæti trúað því að þegar það er skortur á cannabis efnum þá fær fólk sér bara einhvað annað og í flestum tilvikum miklu sterkari efni. Þannig að þegar mikið af cannabis efnum er gert upptækt þá bitnar það á þeim sem gera sér ekki grein fyrir...

Re: Flood er einum of mikið.

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þetta er leiðinda hack. Ég fékk einhvað mmmmmmmm… yfir allan skjáinn hjá mér þegar ég var að spila í dag. Ég var nýbúinn að taka flaggið og nokkrir gaurar að skjóta á mig þegar þetta koma.. ég sá ekki neitt nema “m” og þar sem ég er ekki vanur að sjá svona rugl þá panicaði ég og hljóp beint út í lava. Nú verður bara fara taka á þessu rugli öllu saman sem er í gangi á simnet servernum. setja CSHP á simnet og þeir sem eru með einhver svona leiðindi eiga ekki heima inná public serverum og...

Re: Herðið sultarólina

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þetta er rétt hjá þér… það er allt að fara til fjandans hér á þessu skeri… potent

Re: Nokkrir punktar og andsvar við öllu.

í Unreal fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Vertu sæll WuTang Lifðu heill potent p.s. ég er alfarið á móti window dropping, rocket/redeemer launching, hammer campi fyrir aftan teleportera og að nýta galla á borðum sér til framdráttar. p.p.s ég er ekki mikill spekingur í íslenskri málfræði og læt það því ógert að blanda mér í þá umræðu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok