Sælir félagar. Það er ástæða fyrir því að ég kalla ykkur félaga… ég er nefninlega og hef verið ávallt svag fyrir minnimáttar einstaklingum. Því skulið þið aumir ekki túlka þetta sem hrifningu enda hefur sjaldan andað jafn köldu til ykkar bræður í Unreal. Þið eruð óskilgetnir synir Heru og Andskotans… botnfallið af leikjamenningunni… því miður tilheyri ég þessu ógóða flóði af sóun á líkömum. Af hverju erum við ekki allir í öndunarvél? Hví spyr ég að slíku? Af því mér ofbýður ´hegðan ykkar á þeim opinbera vettfangi sem Unreal er! Og hefst þá lesturinn. Ég hef nú lagt það á augu mín að renna yfir hripið hérna í greinunum og á korknum (sem að öllu eðlilegu hefði aldrei átt að verða til) Ég sem hef Ph.d. gráðu í mannvísindum frá kuklskóla í Króatíu hef komist að eftirfarandi niðurstöðu: Liður a) UT spilarar á Íslandi eru of ungir til að hafa málfrelsi… þeir sem ornir eru lögráða sýna ekki þann æskilega þroska sem þekkist víðast hvar í siðmenntuðum grunnskólum. S.b.r. kjaftæðið á korkinum og það sem er sýnu verra kjaftæði í miðjum leik á Simnet. Nú minntist ágætur DNA á þá staðreynd að CTF spilum á Simnet væri ábótaóvant… og hvað gera hinir þroskuðu spilarar UT og nefni ég þá sérstaklega Czar og hinn helmingin af honum… þeir fara að segja afskaplega leiðinlegar sögur um hvernig þeir spila og hvað sé gaman að vera gúddí spilari… PUT A SOCK IN IT. WE ALL SUCK AND ALWAYS WILL!!! Ahhhh, þarna leið mér ögn betur en betur má ef duga skal! Við erum allir stigahórur í CTF, hvernig stendur á því að efsti maðurinn í tapliðinu er ánægður (gg í þessu tilviki?) fyrir utan skerta greind er það sú að hann stóð sig best. Þetta mun aldrei breytast… hvað sem þið reynið að segja, við sökkum allir í CTF og ástæðan er einföld CTF er DM þar sem nokkrir útvaldir ágætir sem skara framúr í leiknum t.d. Bunny og Svenni eru þeir einu sem fara markvisst að flagginu. Ég er ekki að segja að þeir séu gúddí gæjar, þeir eru orsökin fyrir því að CTF er DM á simnet serverunum. Helvítis þeir! Því ástæðan er einföld, hvað á maður annað að gera þegar þú spilar á móti reyndum CTF spilurum sem ná markvisst í flaggið og ert með 5 vitleysingum í liði annað en að hætta á servernum eða fara í DM inná CTF? hahahah er þetta að verða flókið það er það í rauninni ekki… ég hef aldrei tapað í CTF en hins vegar tapar liðið mitt oftast!
Kveðja WuTangThis
Blóm og kransar afþakkaði