Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

radical
radical Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
588 stig

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ekki nóg með að hópar séu ekki hæfir um að taka þessar ákvarðanir heldur eru þeir að brjóta á öðrum með því að ákveða einhvað fyrir þá. Það er mun hættulegra að mínu mati heldur en “gerviöryggi” fjöldans. Fjöldinn er móðursjúkur og sér andskotann í hverju horni á meðan einstaklingar gera það ekki heldur hugsa skynsamlega um hlutina. potent

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ef ég reyki þá ber mér að taka afleiðingunum. Þess vegna er ég ekki hlynntur ríkisreknu heilbrgiðiskerfi þar sem allir verða að borga hvort sem þeir vilja það eða ekki. Hinsvegar er margt gott við að hafa “öryggisnet”og það er ekkert sem stoppar fólk í að hópa sig saman og greiða í sjóði sem það vill greiða í (svona sameignarsjóði eða hvað sem það er kallað). Ef svo þú lendir í einhverju, hverju sem það er, og þarft að leggjast inn þá gætirðu gengið á þann sjóð ef þú ert meðlimur. Ef þér...

Re: Cigarettes are good!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
En það sem þú vilt þýðir ekki að einhver annar vilji það.

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Nú er ég sammála þér í mörgu af því sem þú segir. Hinsvegar er til fólk sem er ekki sammála sumu eða öllu því sem þú segir. Sumum finnst t.d. betra að hafa heilbrigðiskerfið ekki ríkisrekið (og er ég í þeim hópi fólks) og sumir telja að þeir ráði við sýna neyslu á efnum hver svo sem efnin eru (og ég er líka í þeim hópi fólks upp að vissu marki, ég held t.d. að cannabis efnin séu ekki slæm). Það skiptir ekki máli hver hefur rétt fyrir sér í þessu að mínu mati. En bara af því að við erum...

Re: Greyið Davíð!!!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki hlynntur flokkapólitík. Mér finnst að ef við þurfum endilega að kjósa fólk sem á að “stjórna” okkur (sem ég er reyndar ekkert voða hrifinn af heldur) þá ættum við að fá að kjósa einstaklinga inn á þing. En það verður ekki á allt kosið er það? potent

Re: Til þess sem á við...

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
“Veftjórinn ætti að banna þig fyrir rasista áróður, og fyrir að verja Hitler. Hann sem sönnun þess … bla bla bla….” Hvað ertu að meina með þessu Cosmo? Eftir vel skrifaða grein þar sem þú varst búinn að sundurliða og rífa í tætlur einhvað sem einhverjir sögðu þá endar þú á þessu rugli. Á að banna einhvern fyrir að hafa skoðun sem er ekki í samræmi við þínar? Ég held að þú sjálfur ættir að endurskoða þinn gang því það sem þú ert að segja í lok greinarinnar (banna einhvern) er að mínu mati mun...

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Er virkilega enginn sem hefur einhvað að segja um þetta? Annaðhvort finnst fólki þetta heimskulegt rugl og ekki svaravert eða það að fólk er hrætt við að vera ósammála þessu því það veit innst inni að þetta er rétt og ef það samþykkir þá þarf skipta um skoðun og gefa upp á bátinn skoðanir sem þeir hafa verið að færa rök fyrir svo lengi. Ég hef tekið eftir því að sumt fólk hérna inni svara oft greinum með því að segja að þæe séu ekki svarsins virði en samt sem áður gerist það ekki núna, því...

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég fór að velta þessu fyrir mér útaf öllum þeim umræðum hérna um frelsi og hvað það væri. Að þetta og hitt er bannað t.d. box og vímugjafar og svo framvegis. Ekki má selja þetta og hitt og nú má ekki einu sinn tala um sígarettur nema að maður sé að tala um hversu slæmar þær eru. Hver tók sér það vald að ákveða að ég megi ekki tala um það sem ég vill tala um? Hver ákvað það að ég megi ekki nota þetta eða hitt efni? Hver ákvað það að ég megi ekki boxa við einhvern annan sem vill boxa? Er þetta...

Re: H2O vs TnT rematch!!!

í Unreal fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Hvernig lýst ykkur á mánudagskvöldið klukkan 20:00? þrjú borð. Þið veljið eitt, við eitt og svo eitt speglað borð eins og Face eða Orbital eða einhvað svoleiðis. bunny

Re: Hugleiðing!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Þetta dæmi sem ég tók var ekkert nema bara það; dæmi. Í þessu tilviki gæti fjöldinn sett ný lög sem hentaði honum betur ekki satt? Fjöldinn er hræddur og siðlaus að mínu mati. Ég er ekki að tala um íslenskt samfélag eingöngu þótt það sé auðvitað hluti af þessu öllu. Spurningin var: Hver á að ákveða hvað er fólki fyrir bestu, er það einstaklingarnir sjálfir eða fjöldinn? Það sem ég er að reyna að segja er að það á að höfða til skynsemi og siðferðis einstaklinga en ekki að grípa fram fyrir...

Re: hey...... verður nýji mapppakkinn á skjalfta? [NT]

í Unreal fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég vona ekki.. hann er ennþá svo nýr. En ég vona að einhvað af þessum möppum verði á þarnæsta Skjálfta.. bara spurning um hvað verður vinsælt

Re: Hvar fást IWILL kk266 móðurborð á klakanum?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Þetta er borð sem ég var að pæla í að fá mér en ég fann engann stað hér á landi sem þetta fæst ennþá. Ef maður vill fá þetta verður maður að panta þetta erlendis frá enn sem komið er.

Re: Hver sér um þetta áhugamál?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Enga ritskoðun hér takk fyrir.. ég vill ekki að einhver út í bæ ákveði hvað fer hér inn og hvað ekki eftir sínum stöðæum hvað sé ósmekklegt og hvað ekki Hinsvegar er ég sammála um að þessi póstur um hana Ingibjörgu er ekkert nema bull og þvæla og ber að taka sem slíku. Hugsandi fólk ætti að geta hunsað ummæli frá fólki sem er það ekki, er það ekki annars? potent

Re: Slappleiki í clönum

í Unreal fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Mér finnst 4 stór Lön á ári ekki vera lítið.. þetta er með ca. þriggja mánaða millibili.. það er fínt

Re: Slappleiki í clönum

í Unreal fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég veit bj00l. Þess vegna er ég mjög ósáttur við hvernig hugsunarháttur sumra er. Þetta er í þriðja skiptið sem UT er á skjálfta og í annað skiptið var mikil aukning, alveg eins og fólk vonaði. Nú er eins og allir hafi bara gefist upp. Ekki skil ég hvað fólk er að pæla.. nennir ekki að koma því það eru svo fáir.. bla bla bla.. auðvitað eru fáir ef flest allir hugsa svona. Þessi skjálfti var mjög mikilvægur fyrir framtíð UT á þessum keppnum.. því ef nógu margir hefðu komið þá væri líklegt að...

Re: Gerviþarfir þjóðarinnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Jamms.. við erum fíklar. Við erum búin að koma okkur upp samfélagi sem virkar ekki nema við höfum rafmagn, bíla síma, sjónvörp og þessháttar og við erum vissulega háð þessum hlutum í dag. Þörf, gerviþörf?!? breytir engu í sjálfu sér, við erum öll hooked. Við skulum bara vera sammála um þetta og hætta þessum endalausu póstum hér.. það er margt annað sem við getum “rifist” um :-) friður potent

Re: Miðasalan á Rammstein tónleikana

í Rokk fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Vona að ekki nokkur sála kaupi miða af þessu fólki sem keypti miða bara í þeim tilgangi að græða á því. Það væri gaman að sjá höllina hálftóma núna… Skífan er lélegt fyrirtæki sem hugsar ekki um neitt nema sjálft sig. Ég er ekkert smá reiður út í fólkið sem stóð svona að þessum málum og má það rotna í helvíti fyrir mér. Það er ekki eins og það komi hljómsveitir af þessari gráðu á þetta litla skeri í hverjum mánuði. Og það hafa ekki allir efni á því að fara til útlanda til að hlusta á þær,...

Re: Gerviþarfir þjóðarinnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Já jæja, ok. Ég hugsa þetta bara öðruvísi en þú :) Geviþörf: Einhvað sem maður notar lítið eða ekkert en vill samt eiga. Eða t.d splunkunýr Benz til að fara í vinnuna þegar Toyota dugar fínt í það verk. Þörf: Sjónvarp, rafmagn, “venjulegur” bíll, samgöngukerfi, ískápur, sími o.s.fr. Nausyn: Hiti, matur, vatn og einhverskonar heimili. Ég hugsa þetta svona allavega… kannski við séum bara að nota orðið “gerviþörf ” (er það orð til?) mismunandi. potent

Re: Gerviþarfir þjóðarinnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
En þú sagðir að öll nútímatækni væri gerviþörf.. er strætó ekki flokkað sem nútímatækni hjá þér? Ég myndi ekki kalla strætó gerviþörf því að það er hluti af samgöngukerfi sem við notum og það færi margt í klessu ef strætó væri ekki til staðar. Þess vegna er strætó, sem hluti af góðu samgöngu kerfi, þörf að mínu mati. potent

Re: Slappleiki í clönum

í Unreal fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég get varla verið meira sammála þér Merlin. Það þýðir ekkert að væla um að það sé pláss ef svo það er ekki einu sinni hægt að fylla þessi fáu sæti. Það átti að vera planið að reyna að troðfylla þessi fáu sæti sem UT er skammtað svo það væri grundvöllur fyrir því að fjölga þeim… Ég er að vona að ég geti dregið einhvað af H2O liðinu með mér á Skjálfta. Ef H2O kemur ekki með lið þá vona ég að einhverjir sem eru ekki í clani (eða clanið þeirra mætti ekki) vilji slá saman í lið og vinna þetta...

Re: Greyið Davíð!!!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Flott hjá þér drweir, vel sagt. Nú skrifaði ég svona hálfgerðan skammar pistil hér að ofan vegna þess á hversu lágu plani þessi umræða hefur verið. Og þegar ég les hann aftur yfir þá held ég að margir sem hafi lesið hann hafi miskilið það sem ég var að meina, því þegar ég las hann sjálfur yfir aftur miskildi ég hann einnig :Þ Ég var ekki að setja Davíð á hærri hest en einhver annar þó hann sé góður stjórnmálamaður. En það þýðir ekki að kenna einum manni um allt sem úrskeiðis fer í...

Re: Hamingja til sölu!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Hamingjusamur maður er maður sem veit hvað hann vill úr lífinu og vinnur fyrir því, hvort sem það er hlutur eða einhvað annað. Og hann er hamingjusamur vegna þess að þegar hann er búinn að fá það sem hann vill veit hann að hann hefur unnið fyrir því. Og ég held að maður verði ekki fullkomalega hamingjusamur nema vera sáttur við sjálfan sig og sætti sig við það sem maður er og fyrirgefi sjálfum sér fyrir mistök sem maður hefur gert. Því þá getur maður fyrst einbeitt sér að því sem maður...

Re: Gerviþarfir þjóðarinnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Strætó er bíll.

Re: Einhvað vit í þessu?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Já, svoleiðis… ég skil.. takk fyrir infoið :) potent

Re: Gerviþarfir þjóðarinnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Við hörfum greinilega mismunandi á þetta mál. Það verður bara að hafa það. Ég skil alveg hvað þú meinar. En svo þú fattir hvað ég er að meina ætla ég að koma með smá dæmi. Það má líkja þessu við fíkil… hann getur lifað án heróíns en hann hefur samt þörf fyrir það. Heróinið er þörf en ekki nauðsyn fyrir fíkilinn. þú getur rétt svo ímyndað þér hvað myndi gerast ef það væri allt í einu skrúfað fyrir rafmagnið í heiminum.. það yrði algert chaos. Við erum öll orðnir rafmagns fíklar og þörfin er...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok