jæja ræflarnir mínir, nú get ég ekki orða bundist lengur skal ég sko seigja ykkur, ég var að labba og þá vantaði mig alltíeinu sígarettu, jújú ég gekk með bros á vör að næstu sjoppu…brosið var farið þegar ég kom aftur-400kr fyrir einn skitinn pakka, sveeeei. sko það hefur líklega engin viljað tala um þetta mál vegna þess að þá er honum stungið í fangelsi eða eitthvað þaðan af verra ef maður talar með sígarettum þá er maður satan, allavega sko þetta eru allveg viðbjóðslegar aðferðir sem verið er að nota til að neyða fólk til að hætta að reykja. má maður ekki sjálfur ákveða hvenær á að hætta að drepa sig?og svo eitt annað, meiri prósenta láglaunafólks reykir, þegar sígarettur hækka þá verður þetta fólk frústrerað og fær sér einafeita til að svona höndla þetta stórmál, jújú svo líður og bíður og enn reykir vinur okkar verkamaðurinn, hann á krakka-þegar meiri peningum af því litla sem til er er eytt í sígarettur til að halda foreldrinu í ballans, þá fara börnin á mis við allskonar hluti sem endar með því að við erum komin með annann keðjureykjandi láglaunamann osfr osfr. þar fyrir utan þá er þetta líka bara ljótt hjá ykkur þið sem berið ábyrgð á þessum hækkunum, þið getið ekki farið svona með fólk. “mig langar í sígarettu og ég skal fá sígarettu ” þetta verður líklega það síðast sem þið heyrið áður en jói vinnumaður tekur ykkur sem gísl fyrir karton af nöglum.

allavega þá veit ég að þið eruð ósátt við þetta svo að jæja engann tepruskap ég efli hér með til mótmæla á austurvelli fimmtudaginn 17 maí, skríðið nú út og sýnið að þið látið ekki ganga yfir ykkur!

LIFI BY……UUUUU…..LIFUM HEIL!!!