Það er eitthvað við þennan þýska stíl sem ég elska sem birtist í öllum myndunum sem ég nefndi. Erfitt að útskýra og kannski er það bara hin fallega þýska sem er að villa um fyrir mér en mér finnst þær bara ganga upp að öllu leyti. Allar þrjár. Ulrich Mühe, Bruno Ganz og Klaus Kinski sýna allir stórleik, handritin eru stórkostleg (allavega í Das leben der anderen og der untergang) og ég elska þennan raunsæisblæ yfir nýrri myndunum (ekki hægt að segja það sama um Nosferatu hinsvegar)
Jebb og í 4. myndinni líka. Myndirnar hafa farið verulega illa með hann hingaðtil. Ég held að Warne Bros hiki ekki við að taka hann út úr fleiri myndum. Ég er að hugsa um að sleppa því að sjá myndir nr. 6 og 7..
Nei, ætli 8 plús í grunnskóla sé ekki svona 4 plús í MR fyrstu vikurnar. Svo fara einkunirnar að hækka. Mínar fyrstu einkunir voru svo hryllilegar að ég er ekki viss um að það sé hollt, andlega séð, að rifja þær upp. Bætt við 8. maí 2008 - 22:38 *einkunnir.
Mér finnst það alls ekki vera sjálfselska að leyfa manneskju að taka sitt eigið líf. Það að bjarga henni sýnir frekar það að maður elskar manneskjuna. Síðan getur það verið að sjálfsmorðshugleiðingarnar séu bara tímabundið ástand. Manneskja sem reyndi að fremja sjálfsmorð þegar hún var unglingur lifir góðu lífi fullorðinn.
Nei, danskan skiptir engu máli fyrir utan það ef þeir þurfa að velja á milli tveggja nemenda með sömu meðaleinkunn( í greinunum fyrir utan dönsku) Ef þeir lenda í þeirri aðstöðu horfa þeir líka á dönskueinkunina. Bætt við 6. maí 2008 - 12:32 Það er mjög mismunandi eftir ári hversu háa einkunn maður þarf til þess að komast inn í skólann. Fer eftir vinsældum. Ég held að hún hefur yfirleitt verið í kringum 7.5. Er samt ekki alveg klár á því. Hins vegar er námið svo erfitt að þegar í skólann er...
Nei, það er ekki þú sem ert lélegur í reikningi heldur er það víst ég;) Ég hafði einungis lært ártalið en textinn varð eitthvað svo stirður með því að segja það bara, þannig að ég reiknaði það út hersu gamall hann væri þá og bætti því við. En ég hef greinilega reiknað vitlaust. Afsakaðu þetta:)
Mér finnst vanta myndina, nói Albínói. Annars eru þessar mínar uppáhalds myndir frá Íslandi: Mýrin, Englar Alheimsins, Brúðguminn, Börn, Sódóma Reykjavík, Veðramót.
Nei, ég get ekki sagt það og þess vegna voru þessir þrípunktar kannski óþarfir en það breytir því ekki að þessar þrjár myndir eru allar á mínum lista yfir bestu myndir allra tíma og þar sem einu þýsku myndirnar sem ég hef séð eru algjörir gullmolar þá hugsa ég um Þýskaland sem mína uppáhalds kvikmyndaþjóð. Mér finnst nú magnið skipta meira máli en gæðin. Margir af mínum uppáhaldslekstjórum eru reyndar bandarískir: Stanley Kubrick, Coen bræður og Steven Spielberg en ég einfaldlega get bara...
æj mér finnst bara eitthvað rangt við það að sá sem er svo óheppinn að eiga foreldra frá sitt hvoru landinu skuli í rauninni ekki eiga heima neinsstaðar heldur vera hálfur þetta og hálfur hitt..
Það væri reyndar rosalega svalt ef að myndin yrði þannig. Svolítið eins og Pan's Labyrinth. En þar sem Disney mun framleiða myndina held ég að hún verði líkari Charlie and the Chocolate Factory.
Virkilega spennandi sýning. Ég var frekar efins fyrst þegar ég heyrði um hana en eftir þessa lesningu er mig farið að langa. Þjóðleikhúsið er að setja upp alveg magnaðar sýningar í ár þó að mér fannst sólarferð reyndar léleg. En mér finnst hvorki Dóra Jóhannsdóttir né Stefán Hallur vera neitt sérstakir leikarar. Mér finnst Dóra hafa einfaldlega lélega (og já, eiginlega bara óþægilega) raddbeitingu, eins og þú talaðir um, og stefán hefur einstakt lag á að fara í taugarnar á mér einhverra...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..