Endir bókarinnar er nefnilega stórkostlegur. Saruman hefur tekið yfir Hérað og Hobbitarnir eru kúgaðir. Tré hafa verið rifin, myllan brennd(ef ég man rétt) og allt grænt vikið fyrir steypu. Svo kemur stórkostlegi parturinn: Allir íbúar Héraðsins gera byltingu og tekst, með sameiningu, að fá Hérað sitt til baka. Þeir svo enda á því að drepa Saruman. Peter Jackson fannst með réttu að áhorfendur hlytu að vera orðnir mettaðir eftir stóra stríðið í Hilmir snýr heim. Þess var þessum hluta sleppt...