Heath ledger. Áður en ég sá myndina var ég efins og studdi minn mann (Jack nicholson) en svo sá ég hana og…ja..ég held að það sé engin spurning. Heth ledger fór með algjöran leiksigur og mér rústar þeim gamla. Bætt við 6. ágúst 2008 - 23:52 Arg. Sama hversu lítið ég segi tekst mér alltaf að lauma inn innsláttarvillu. Þetta “mér” á milli “og” og “rústar” á ekkert að vera þarna.
Ekki í neinni sérstakri röð: Hringadróttinssögumyndirnar Der untergang Das leben der anderen Pan's Labyrinth V for vandetta No country for old men The big Lebowski Fargo The dark knight Konungur ljónanna Ég er auðvitað að gleyma fullt af myndum en þessar eru allar góðar.
Uppáhalds leikkonan mín er Cate Blanchett. Ekki bara hefur hún leikið nær undartekningarlaust í góðum myndum heldur sýnir hún guðdómlegan leik í þeim öllum. Einstaklega gaman að sjá hana leika. Þar að auki er hún ein fallegasta leikkona Hollywood. Það er erfiðara að velja karlleikara. Einmitt núna er Heath Legder í miklu uppáhaldi þar sem ég var að koma frá The dark Knight. Þar var hann næstum því óhugnanlega góður Hins vegar hef ég bara séð hann í þeirri einu mynd. Úff..ég kem með nöfnin á morgun.
Það eina sem ég veit er að Nolan tekur ekki að sér myndir nema að honum finnist þær góðar. Þannig að við munum vonandi ekki sitja uppi með lélega framhaldsmynd sem eiðileggur þríleikinn. Samt spurning hvort hún toppi TDK. Ég hef ekki séð hana en ég hef heyrt að það eigi að vera ómögulegt.
Já, þetta er beinlínis hryllilegt og, eins og þú sagðir, til skammar. Ohh..getur þessi stjórn okkar ekki gert neitt rétt. Ég get ekki lengur sagt að ég sé stoltur af því að vera Íslendingur eins og ég gat fyrir nokkrum árum.
Ég var ekki að segja að þyngra fólk væri endilega hamingjusamara en léttara fólk. Sviginn fyrir aftan átti að koma í veg fyrir misskilning af því tagi en hann virðist vera heldur óskýr. Þar hefði átt að standa: (er ekki að segja að grannt fólk sé óhamingjusamara heldur en þybbið fólk og öfugt)
Hvað er að fólki! Hafiði ekkert lært! Mér finnst þyngd skipta litlu máli hvað fegurð snertir. Lífsglatt og hamingjusamt fólk í feitara kantinum er svona þúsund sinnum fallegra heldur en óhamingjusamar horrenglur. (ekki að segja að allt mjótt fólk sé óhamingjusamt)
Ég veit því miður mjög lítið um Kvennó en ég er sjálfur í MR og get sagt þér að náttúrufræðibrautin þar er rosalega góð. Hún er samt brjálæðislega erfið og maður þarf að hafa mikinn sjálfsaga og vera duglegur. En ef þú ert góð námsmanneskja þá er MR frábær. (en alveg örugglega Kvennó líka)
Ahh..það er auðvitað rétt. Í Hringadróttinssögu (a.m.k. í myndinni, ég man ekki hvernig það var í bókinni) segir Gandalfur honum að hann hafi ekki elst neitt. Skrítið að þeir séu þá að leita að yngri leikara…
Oft eru leikritin sem ég var á síðast bara í uppáhaldi hjá mér þá stundina. En skemmtilegustu leikrit leikársins fannst mér vera Ivanov og Engisprettur. En ég var einmitt líka á sýningu þar sem kona hló eða öllu heldur gaggaði, allan tímann. Þetta var á leikritinu Sólarferð og Ólafía Hrönn virtist vera í sérstaklegu uppáhaldi hjá henni. Leikkonan mátti varla opna munnin og þá byrjaði konan að hlæja.
Hvernig í veröldinni gátu þeir gert þetta. Drepa þetta tignarlega dýr sem er, auk þess, í útrýmingarhættu. Og þetta gerðu þeir allt án þess að fella eitt einasta tár. Svo stilltu þeir sér upp fyrir myndavélina fyrir framan björninn með hetjuglott á svipinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..