Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ovirkur
ovirkur Notandi frá fornöld 176 stig

Re: Pælingar

í Kettir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hvort þér verði leyft að hafa köttinn þinn sem útikött er alveg spursmál. Á eftir að koma í ljós þegar þið flytjið inn. Annars er um að gera að halda kannski inni fyrst og svo hleypa út en hafa auga með honum fyrstu dagana. Hvað varðar kattasandinn útum öll gólf, þá er hægt að kaupa mjög hentugar plastmottur sem þeir stíga á og sandurinn fer í. Fæst hjá Dýraríkinu. Hvað varðar lyktina, þá hljómar sem þú sért einfaldlega ekki með nógu góðan sand… Veit samt ekki, getur líka farið eftir fæði....

Re: Dönskukennsla

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Álitið á þessari dönsku er jú misjafnt og finnst mér þetta fara alveg rosalega eftir því hvað fólk er að fara læra! Ég skal viðurkenna að danska í grunnskóla er nú ekki upp á marga fiska en um leið og því er haldið við í framhaldsnámi er allt önnur saga. Svo fer þetta að sjálfsögðu eftir áhuga! Ef þú hefur ekki áhuga á þessu, þá læriru að sjálfsögðu ekki. Þú talar um að læra á 4 árum að tala eins og innfæddur. Ég hef aldrei dvalið í danmörku lengur en ca 2 vikur (hef komið þangað tvisvar)....

Re: Önnur kisan mín er að beima!!!

í Kettir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég lét taka minn fress úr sambandi áður en hann fékk tækifæri á að fara gefa frá sér einhver óhljóð. Beið bara eftir að hann var orðin sex mánaða og þá var bara “Halló Doksi”. -Bugs

Re: Freakz me out !

í Kettir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég sprakk einmitt úr hlátri þegar fressinn minn byrjaði að “gagga” svona út í glugga… Var ekki viss hvað ég ætti að halda þar sem ég hef ekki átt kött en sá strax hvað var í gangi þegar ég leit út með honum ;) -Bugs

Re: Ástarsaga (bad ending)

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hvernig væri nú bara að nefna við ykkar nánustu svona “dæmi” um hvernig þau myndu bregðast við ef þú fyndir mann sem væri 10 árum eldri og sömuleiðis hann? Bara hugmynd. Annars finnst mér þetta enginn svakalegur aldursmunur. Virðist sjálf vera svolítið þroskuð og hann líka! En eins og ég las, þá er ár alveg ótrúlega fljótt að líða og “If its meant to be” þá munuð þið taka saman aftur! Gangi þér vel! -Bugs

Re: Aftur um Barnabætur, vaxtabætur og aðrar bætur

í Fjármál og viðskipti fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já, þetta getur verið bæði til hins betra og verra. Þekki sjálf nokkrar manneskjur sem haga heimilinu svona vegna þess að annars myndu þau ekki lifa það af (vegna þess að hinn svokallaði heimilisfaðir er með samasem engar tekjur og gerir ekkert). Annars hef ég bara ekki kynnt mér málið nógu vel frá báðum hliðum og get því miður ekki tekið almennilega afstöðu. Sjálf er ég í sambúð en ekki með nein börn eða þess háttar. Fæ mína skólastyrki og það er allt og sumt! -Bugs

Re: IRON MAIDEN halda tónleika á Íslandi 7. júní

í Metall fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Eru meira að segja á afmælisdaginn minn en ég verð ekki á landinu þá! :/ -Bugs

Re: Hey stelpur!

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég vaknaði hálftíma fyrr en vanalega og bakaði pönnukökur handa mínum :) Hann var rosalega glaður. Bugs

Re: Hmmm?

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Myndir þú ekki vilja láta segja þér frá því ef svona kæmi fyrir þig og þinn maka? I know I would. Annars er það þitt að ákveða. Er náttúrulega ekki þitt mál, gætir misst vináttu hans fyrir að segja frá. Fer eftir aðstæðum. Ræddu við hann. Bugs

Re: Er hann þess virði?

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég held bara að þú sért smá kjáni…. Ef ég skil þetta rétt kynntistu honum gegnum netið og bjóst við að hann myndi hitta þig-bókstaflega. Hugsaðu þig vandlega um svona hluti, heimurinn verður alltaf verri með degi hverjum :/ Bugs.

Re: framhjáhald

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Þetta er ákvörðun sem enginn getur tekið nema þú! En ég get svosem sagt að ef maður hefur fallið í freistingu einusinni þá er auðvelt að falla aftur og svo öfugt. Þú verður bara að hugsa þig vandlega um og tala við hana um þetta mál og vertu alveg hreinskilinn og biddu hana að vera það líka. -Bugs

Re: Gamla rómantíkin er dauð

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Rómantíkin er sko alls ekki dauð! Get sko vottað um það! Margar stelpur vilja rómantíkina en of mikið af því góða og þær gefast upp. Veit um nokkrar stelpur sem gáfust upp á svona gaurum… En mín reynsla er sú að rómantík í bland við smá karlrembu (er sko kvenkyns) er alveg frábær blanda ;) Var einusinni í vinnunni að kynna einhverja vöru þegar kallinn kemur að mér með hendur fyrir aftan bak… Svo réttir hann fram hendina með meters langri rauðri rós fyrir framan allt fólkið í búðinni. Get...

Re: Ástin í lífi mínu

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
En gaman að heyra, ekki oft sem þetta fer svona vel :) Ég kynntist mínum núverandi þegar ég var 15 ára. Búin að vera saman í rúmlega 5 ár núna og gengur vel :) Vonandi gengur þetta upp hjá þér! Passaðu þig bara að fórna ekki öllu fyrir hann, gætir séð eftir því! -Bugs

Re: Ódýrt 20 sinnum.

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Bwahahahaha :) Úff ef ég myndi setja upp svona lista… held hann yrði endalaus :/ -Bugs

Re: fyrrverandi kærasti

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Tek undir þetta með Spor! Bugs.

Re: Svikari?

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Vertu trú sjálfri þér! þetta er ömurleg staða og mun ekki batna. Ef eitthvað þá mun hún versna og ef þu tekur ekki ákvörðim fljótlega þá mun annar hvort komast að þessu og þú munt missa þá báða! Þetta er svo algeng klemma, nánast orðin klassík! Gangi þér vel! Bugs.

Re: kisan dáin

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hún fær alveg mína samúð, ég hefði orðið mjög sár yfir þessu líka. En ég er líka sammála spor um að passa vel upp á þær séu inni fyrstu mánuði og sérstaklega svona um áramótin. Minn var sko lokaður inn í búri meðan mestu lætin voru.

Re: Hvað kostar að eiga ketti

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Fyrsta bólusetning, gelding og eyrnamerking fyrir fress er 8700kr á dýraspítalanum í víðidal. En að gelda læðu er dýrara.

Re: Getur einhver hjálpað?

í Rómantík fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Til Hamingju Tvinni :) Þetta er fyrsta skrefið. En svona til að hugrheysta þig örlítið. Þá á ég einn góðan vin sem er tveimur árum eldri en þú og er einmitt í sömu stöðu og þú! Ég verð að viðurkenna að ég hélt fyrst að þessi grein væri eftir hann en aldurinn passaði ekki, en flest annað gerði það. Mitt ráð er það sama og flestir hafa verið að segja þér. Bara takast á við þetta, reyna koma þér smá út á lífið og um leið og þú heldur að þetta sé komið gott og vilt hörfa þá kemur ung dama þér...

Re: Hreinlega ekki þess virði!

í Rómantík fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg sammála! Ég fæ nú ansi oft að heyra þvílíkar ástarsorgar sögur frá frænku minni og þá er ég nokkra daga að hughreysta hana. Hún er líka oftast komin á “markaðinn” innan við viku aftur.

Re: Varúð-Hive !!!!!!!

í Netið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hélt að allir vissu að þetta yrði svona til að byrja með… Þeas að nettengingin myndi ekki þola álagið í fyrstu. Gerist alltaf með tækninni… Eða það er mín reynsla. Bugs

Re: Gamla Góða Nintendo

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já hún virkar alveg. En það þarf stundum að blása í leikina. En snúrurnar virka fínt. Var ekki búin að ákveða neitt verð þar sem ég vissi ekki hvort einhver hefði áhuga… Hvað finnst þér sanngjarnt verð?

Re: Hvað myndir þú borga fyrir...

í Bílar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hann er 88 árgerð. Og hann er reyndar keyrður 250þús en í ótrúlega góðu standi.

Re: Hvít Toyota Corrolla "94

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Seldur!

Re: fullkomið deit en hvað svo ?

í Rómantík fyrir 24 árum, 1 mánuði
Þetta er bara enn ein afsökunin. Það er nokkuð örugglega ekki aldurinn. Henni hefur bara brugðið svo við að finna herramann að hún er hrædd og heldur að þú hafir jafnvel bara verið að leika þér að henni. Ég veit það fyrir víst að ef þetta kæmi fyrir mig þá myndi ég ekki vera neitt of hrifin fyrst, vegna þess að strákar eru ekkert betri en við stelpurnar þegar kemur að leikaraskap eða eitthvað þess háttar. Gefðu henni smá tíma til að átta sig….nú ef hún gerir það ekki þá er hún engan veginn...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok