Það er alveg hræðilegt að horfa upp á kattargreyið! :D Samt svo pínlega fyndið!!!
Á sko tvær læður, systur úr sama goti, ca. 6-7 mánaða. Greyið rúllar sér um allt gólf, kurrandi og grúmandi, með rassinn útí loft. Það er svo fyndið að sjá hana!!! Alveg að farast! :D Ég dauðvorkenni greyinu samt soldið… Stefnan er að taka þær úr sambandi þegar hin verður farin að breima líka (ódýrara þannig, systkinaafsláttur).

Ég bara varð að deila þessu. Algjört bíó að fylgjast með vesalings skepnunni. :) Kannski spurja svona í leiðinni, hvað breima kettir yfirleitt lengi? Gamla læðan mín var alltaf á pillunni svo það hefur ekkert vandamál verið þar á ferðinni. Bara svona að spá hvað ég þurfi að horfa upp á kattargreyið engjast á stofugólfinu lengi ;þ