http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1122911
Breska þungarokksveitin Iron Maiden mun halda tónleika í Egilshöll 7. júní í sumar. Eru tónleikarnir í tengslum við hljómleikaferð sem Iron Maiden fer í um Evrópu í tilefni af útgáfu á tvöföldum DVD-diski með efni frá tónleikum hljómsveitarinnar.

Iron Maiden var stofnuð árið 1976. Í hljómsveitinni eru nú Steve Harris, sem leikur á bassa, gítarleikararnir Dave Murray, Janick Gers og Adrian Smith, trommuleikarinn Nicko McBrain og söngvari er Bruce Dickinson, sem einnig starfar sem flugmaður fyrir breska flugfélagið Astraeus og hefur flogið fyrir Iceland Express.

Ragnheiður Hanson stendur fyrir tónleikunum í sumar. Tilkynnt verður síðar um hvar miðar verða seldir og hvaða hljómsveitir munu hita upp fyrir Iron Maiden í Egilshöll.


Þetta er geðveikt!! :P Sagt var að þeir komi með mikið stærra svið en metallica, og að tónleikarnir verði meiri svona sýning. Ekki eins hrátt og metallica.