Þetta er allt mismunandi eftir einstaklingum. Getur vel verið að það taki þig 6-9 ár;). Ég hugsa að enginn myndi nenna að læra á óbó ef maður næði ,,ekki fallegum tón" í níu ár.
Þú gætir fengið verðlaun eða eitthvað… Tónninn skiptir öllu máli þegar spilað er á gítar! Tökum sem dæmi algengan gítar, Stratocaster-týpu einhverja, á honum eru tveir takkar sem stjórna tóninum og einn 5-staða takki sem stjórnar á hvaða pick-up er spilað (og það breytir öllu hvernig hann situr). Magnarar hafa síðan frá 7 upp í marga tugi takka sem breyta hljóðinu á alla mögulega lund. Þú tekur ekkert bara upp næsta gítar og lemur nokkur grip og verður heimsfrægur… (Undantekning: hr. Cobain.)
Spá í gæði tónsins á gítar?! Er ekki í lagi heima hjá þér? Heldur þú virkilega að gítarleikarar glamri bara eitthvað á strengina og pæli ekkert í því hvað hlustendur heyra? Mér þætti gaman að heyra þína útskýringu.
Hvað varð um það sem tíðkaðist í minni tíð að bíða bara eftir einkunnunum? Þið eruð bara að ergja ykkur að óþörfu því engu getið þið breytt héðan af… Hafið heldur áhyggjur af prófunum sem eru eftir.
Það er ekki það sem ég meina! Þú segir að hann beri ekki virðingu fyrir hlutum sem aðrir eiga af því að hann sagði sína skoðun á þeim, sem var slæm. Hann hefur bara fullan rétt á því að tjá sína skoðun og það tengist ekki vitund virðingu.
Séns! Mátti reyna þetta en ég vona að þeir sem skoði þennan þráð skoði þetta svar. http://www.music123.com/Epiphone-Les-Paul-Custom-i30065.music. Kaupið hann nýjan gegnum shopusa.is á 599,99$ plús sendingarkostnað. Fáið hann heim að dyrum á 69.600. Nýjan, ath. www.shopusa.is.
Einstein var alltof gáfaður til að koma með slíkar alhæfingar. Það sem hann sagði var að 98% mannkyns gæti ekki leyst hana innan ákveðinna tímamarka, segjum 10 mínútum. Einhvern veginn hefur þetta síðasta farið aftan af.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..