það er mér mikil erfiði að segja frá þessu en uppúr mínu heitþráða sambandi slitnaði í
gær, þegar kærasti minn tjáði mér það að hjá honum vantaði neistann.
Ég gerði mitt besta til að gera sambandið sem best en ef að það er bara einn aðili að
berjast þá er orrustan töpuð.
Við töluðum vel og lengi í gær og ég sagði honum allan minn hug til hans, en mér
fannst rétt að við enduðum þetta alveg, engin pása ekkert bólfélaga stúss neitt.
Vil ekki að hann haldi mér heitri fyrir mig en ekki sig.

Jæja kæru Hugarar lífið er innilega sárt og það mun ég upplifa en lífið verður að halda
áfram og ég horfi bjart fram á nýja tíma en mun ætíð sakna hans.

En einsog ég segi þegar einhver deyr þá fattar fólk það ekki fyrr en það sér sinn
heittþráða fara ofan í gröfina.
Nú ég lét minn ástkæra vin fara ofan í gröfina sína,
Ég óska honum alls þess besta í lífinu sem ég veit að hefur verið erfitt.

Kæru hugarar þó að ástarsorg sé erfið þá verðið þið að hugsa að lífið er ekki búið.
það er ekki heilbrigð hugsun.

Endilega þið sem deikið með mér ástarsorg sendið mér skilaboð og ég mun jafnvel
reyna að gefa ykkur góð orð í eyra.

Kær kveðja Randve
————————