Hæhæ
Málið er að ég hef verið að pæla…Geri svolítið mikið af því :)

Ég er síðasta árið búin að fá smá reynslu í mínum strákamálum, en ég hef aftur á móti enga reynslu í samböndum, þó að ég sé komin á 18.árið… Okey, frekar sein í því hugsið þið kannski, en það verður bara að hafa það, að vísu hef ég fengið tækifæri til þess en það þarf bara áhugann, ekki er ég að fara að vera með strák bara til þess að vera með strák. Það er bara ekki sniðugt finnst mér. Ég vil heldur ekki strák sem hugsar bara um að ríða eða eitthvað svoleiðis. Vonandi skiljið þið mig ;) Þetta kemur líka alltaf þegar þetta á að koma, there is a time for everything!

Ég hef samt alveg áhuga á strákum yfirleitt, en ég bara nenni ekki að standa í slíku núna, því að því geta oft fylgt ýmsar áhyggjur og hugleiðingar sem eru bara óþarfi. Ég hef líka gaman að því að skemmta mér og kannski hössla stráka á djamminu, en þá er það allt voða saklaust ;) Mér finnst líka gaman að eiga smá svona saklaus skot öðru hverju…

En ég hef verið að hugsa, og hérna kemur pælingin: Ég bara nenni ekki að vera að leita eða hugsa um strák núna! Ég meina, ég er nú bara 17 ára og meira en nægur tími til að hugsa um svoleiðis mál. Sko, ég á örugglega eftir að vera gift í áratugi, og af hverju ekki bara að njóta “the single life” og frelsisins sem því fylgir á meðan ég get? Þó að ég þekki ekkert annað þá getur það verið alveg æðislegt að vera frjáls, það fer bara eftir því hvernig maður lítur á það.

En þið sem eruð í sambandi, alls ekki taka þessari grein illa, ég er alls ekki að segja að það sé leiðinlegt að eiga kærustu/kærasta, það er örugglega alveg frábært að vera ástfanginn, ég get bara ekkert sagt um það því að ég hef aldrei verið það, og ég viðurkenni það alveg að stundum langar mig geðveikt í strák til vera með og elska. En ég er bara að reyna að líta á þetta með jákvæðum augum.

Ég vildi bara fá álit ykkar á þessu hugarfari mínu…Ekki haldið þið að það sé eitthvað að mér þó að ég hafi ekki áhyggjur á einhverju strákastússi einmitt núna, þó að ég sé einmitt á þessum aldri? Hvað finnst ykkur? :)
Og gerið það, ekkert skítkast!

Takk fyrir
kveðja
friend
Ég finn til, þess vegna er ég