Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

nobbs
nobbs Notandi frá fornöld 158 stig

Bróðir minn er þyrstur

í Smásögur fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Frábært! :) Maður bíður allan tíman eftir því að eitthvað gerist, var samt eins og það tæki sögupersónuna alveg heila eilífð að fara yfir um, ef svo má segja. Vel skrifað, góð uppsetning og det hele.

Heppni í óheppni

í Smásögur fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Jamm… dreif mig niður ekki drífði :) Svo er svoldið spaugilegt að Erla skuli vera í bílnum fyrst “það var enginn í honum nema bílstjórinn.” Annars finnst mér þetta alveg þokkaleg saga, vantar aðeins meiri vinnu. Nokkrir fínir punktar sem eru því miður slitnir í sundur. Mér finnst t.d. síðasta setningin alveg meiriháttar: “Ég fór vonsvikinn og glaður í einu ég beið aftur eftir strætó og reyndi að rifja upp símanúmerið hennar Erlu.” Nánast Megasar-legt í öðru samhengi :) Endilega halda þessu...

Re: stafsetningarvillur...

í Smásögur fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Ég veit nú ekkert um þetta bréf, er ég hræddur um… En eftir því sem ég best veit var þessi stafsetning einfaldlega stafsetningin sem Laxness lærði sjálfur á æskuárunum. Að segja að hann passi ekki upp á stafsetninguna hjá sér er því heldur fljótfærnislegt, því það gerði hann. Það bara hittist svo á að hans stafsetningarreglur eru ekki þær sömu og við lærum :)<BR

Re: Könnun!

í Smásögur fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Mér finnst nú að það ætti að vera bókmennta áhugamál hérna líka, veit einhver hvernig væri hægt að biðja um viðbótar áhugamál? Það væri mun sniðugra hefði ég haldið ef smásögu áhugamálið gæti þá verið fyrir innsendar smásögur eftir notendur Huga.is, meðan bókmenntaáhugamálið snerist frekar um (málefnalegar) umræður um ýmis skáldverk. (allt frá smásögur upp í epíska sagnabálka) Er ég bara að steypa?<BR

Re: Re: Led Zeppelin Tónleikarnir!!!

í Hljóðfæri fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Það væri frábært ef þeir tækju the Wall, ég fór á Dark Side of the Moon tónleikana (þar sem hljómsveitin var skipuð flestum ef ekki öllum þeim sömu), þeir voru einstaklega vel heppnaðir. Flott hjá þeim að hafa svona fyrst að það er jú heldur erfitt að komast á tónleika hjá þessum hljómsveitum :P

Re: Betri en Schumacher?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Það kemur nú reglulega nýr <Fangio/Clark/Hill/Prost/Senna/Schumacher/einhver annar frægur>, en fáir ná að standast væntingarnar. T.d. var Jan Magnussen sagður vera nýr Senna, og hvar er hann í dag? Mér þykir nú líklegt að hér hafi verið átt við Kimi Räikkönen, þar sem hann er með þeim allra yngstu og er með minnstu reynsluna, en er samt að standa sig með prýði. Þetta gæti líka átt við Button, þó hann sé auðvitað að byrja sitt annað tímabil. <BR

Re: Re: Næstu Spielberg myndirnar

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Hmmm… Minority Report? Átti það ekki að verða næsta myndin hans Kubricks heitins? Kannast allaveganna voðalega við nafnið…

Re: Re: Räikkönen með tímabundið leyfi.

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Heldur betur, og Sauber þarf varla að hafa miklar áhyggjur. Það er ekki spurning að hann er búinn að sýna virkilega góða takta á æfingum… En það er náttúrulega ekki það sama og keppni. Hann á auðvelt með að finna línuna og halda sig vel á henni, en hvernig ræður hann við Formúlu 1 bíl ef hann lendir útaf línunni? Maður verður bara að vona :)

Re: Ferrari með nýja bílinn

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Þetta var nú ekki ‘í morgun’ (31. jan) eins og stendur þarna að ofan… Þetta gerðist þann 29. Bara svona benda á það :)

Re: Re: Re: Re: Annar nýr ökumaður bætist í hópinn.

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Dísös.. Var að lesa þetta aftur :) Ég skrifaði Bertholdi allstaðar.. Hann heitir Bernoldi. Puttarnir eitthvað fatlaðir í dag… :P

Re: Re: Annar nýr ökumaður bætist í hópinn.

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Að mestu óákveðin meina ég auðvitað… ARGH. Hvernig er það annars, er ekki hægt að breyta eftir að maður hefur sent?

Re: Annar nýr ökumaður bætist í hópinn.

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Vildi bara bæta því við um framtíð de la Rosa, að hún er að mestu ákveðin. Minardi eiga enn eftir að tilkynna hverjir muni aka fyrir þá, svo þar er einn möguleiki. Einhverjir telja þó líklegt að hann gæti tekið sæti sem tilraunaökumaður hjá Prost liðinu, og vonað að Mazzacane standi sig ekki og fái þá hans stöðu. Það er samt spurning hvort er betra, örugg staða hjá Minardi, eða möguleg staða hjá Prost…

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Nýr hjlálmur schumachers

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Þar að auki virðist “höfundur” greinarinnar hafa lítið meira um málið að segja; hefur ekki einusinni reynt að svara fyrir sig, og ég efast um að hann hafi einu sinni lesið álit okkar á þessu. (Upptekinn við að safna stigum annarsstaðar?) :P

Re: Re: vinsældir formúlunnar

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ég hef lítið gaman af málaferlunum verð ég að segja… :P En hvað varðar öryggi bílanna, þá fannst mér það áhugavert sem Jackie Stewart sagði í fyrra (eða hitteðfyrra, man ekki alveg hvenær) þegar hann var spurður um hvað honum fyndist um hvað framúrakstrar væru erfiðir, og af hverju hann héldi að svo væri. Hann sagði eitthvað á þá leið að keppnirnar hefðu verið svona miklu jafnari áðurfyrr ekki af því að gripið var minna eða bílarnir jafnari hvað kraft varðar, heldur vegna þess að öryggið var...

Re: Re: Lánlaus Jagúar

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Olían hefur örugglega hætt að leka… Þegar olían hættir að leka í þessum bresku bílum, þá er eitthvað að. Allaveganna samkvæmt minni reynslu af Roverum, og ég er viss um að það sé svipað í Jagúörum. Lang bestir! :D

Re: Re: Hakkinen að hætta ?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Ég er ansi hræddur um að það verði ekki Coulthard sem myndi valda Schumacher helstu áhyggjunum (en Hakkinen er ekki að hætta, en þetta gefur mér færi á að koma kenningu minni á framfæri :). Ég held að Coulthard geti ýmislegt, en ég held að velgengni hans fyrr á árinu hafi aðalega verið óförum Hakkinens að þakka. Það yrði einhver af yngri ökumönnunum sem veittu Schumacher mesta keppni, Fisichella eða Frenzen kannski, eftir því hvor verður á betri bíl, eða jafnvel Villeneuve ef BAR halda áfram...

Re: Hakkinen að hætta ?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
O, nei, varla. Þetta eru gamlar fréttir og ekkert nema getgátur. Häkkinen hefur sjálfur aldrei sagt annað en að hann klári sinn samning og sjái svo til. Og samningurinn sem hann er á núna rennur út eftir tímabilið 2001.

Re: Re: Re: Auglýsingar í formula 1

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Ja…. Hvað eru margir íbúar sem borga í skatt til ríkisútvarpsins hér, miðað við út? Ha? :) Mér finnst það nú varla sambærilegt, og mér finnst að RÚV hafi staðið sig vel með Formúlu 1 útsendingarnar (það er ekkert sem heitir ódýrari útgáfa af Formúlu 1. RÚV þarf að borga það sama og stóru stöðvarnar út í heimi).

Re: Re: Re: Auglýsingar í formula 1

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Stöð 2 með F1? Ég var ekki búinn að heyra það… Hvenær á það að ske? Ég bara skil ekkert í RÚV ef þetta er satt…. :P

Veist _þú_ ekkert?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Í fyrsta lagi var ég búinn að benda á það að Panis væri reyndur. Svo hefur hann aldrei keyrt fyrir Arrows, hann byrjaði ferilinn hjá Ligier, og hélt áfram með liðinu þegar Alain Prost keypti liðið og breytti nafni liðsins í Prost. Hann missti nokkrar keppnir vegna meiðsla ‘97, en kláraði þó tímabilið, OG keppti fyrir Prost ’98 og ‘99. Hann var engan veginn úr leik eftir slysið ’97. Sko, mér finnst allt í lagi að leiðrétta, og það er líka í lagi að gera mistök. Mér finnst aftur alger óþarfi...

Veist _þú_ ekkert?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum

Re: Hakkinen, stig eða ekki stig.

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Það er nú ekki alveg rétt, það var ekkert fiktað við neinar rafeindastýringar. Það sem gerðist var að eitt innsigli vantaði á vélina. Það var þó strax ljóst að ekkert hefði verið fiktað, forritunum í tölvukerfinu (sem eru hlaðin inn í gegnum þennan stað í vélinni) hafði ekkert verið breytt (borin saman við forritið sem var tekið niður áður en innsiglið var sett á), og til að hægt væri að fikta við vélina þyrfti að fjarlægja fleiri innsigli (ekkert sá á hinum). Vissulega eru allar...

Re: Re: Michael Schumacher fær nýja vél

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Það verður líka að athuga að ákveðnar hættur fylgja yfirleitt nýjum vélum. Smá galli gæti komist í gegnum prófanir óséður, og komið fram í miðri keppni þegar á reynir. Það verður samt gaman að sjá hvað auka-hestöflin gera fyrir Ferrari á Spa. McLaren ættu að standa sig vel þar, enda mjög hröð braut þar sem hvert hestafl getur skipt sköpum.

Re: Ökumaður eða bíll ?

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Góð spurning. Ég held að það sé blanda af hvoru tveggja, Salo stóð sig vel með Ferrari, og tókst næastum að vinna einusinni (hleypti Irvine framúr). Það er dæmi um einn af slakari ökumönnunum að standa sig vel í góðum bíl. Svo má nefna Damon Hill þegar hann vann næstum í Ungverjalandi á Arrows, sem þá var eitt af botnliðunum (þeir eru nú aðeins skárri núna). Það dugir semsagt ekki að vera á hraðskreiðum bíl sem skilar sér í mark ef maður ræður ekki við hann, en það þýðir heldur ekki að geta...

Re: Sanngjarnt!!!

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Neeeeeiii. Häkkinen :Þ :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok