Þessa dagana er Jagúarliðið við æfingar á Valensia á Spáni og það er ekki hægt að lánið leiki við þá frekar en fyrri daginn. Eddi kallinn Irvin klessti bílinn sinn á æfingu í morgun og það hressilega að ekki verður gert við hann nema heima á Bretlandi. Ástæða óhappsins var vélarbilun í hraðri beygju svo írinn þeyttist yfir malargryfju og á dekkjavegg. Þótt segja megi að írinn Eddi sé orðheppinn kjaftaskur er ekki að sjá að sú heppni nái lengra. Skyldi hann fá einhver stig á sumri komandi?