Ein gömul pæling:
Stig voru tekin af McLaren liðinu vegna þess að fiktað hafði verið í einhverju kassa fyrir rafeindastýringar fyrir nokkrum keppnum síðan. Mitt mat er að Hakkinen hefði ekki átt að græða á þessu fikti, og þar af leiðandi ekki átt að fá stig, hvort sem hann vissi af þessu eða ekki. Hann var líka grunsamlega langt á undan hinum…(fór í sturtu og fékk sér Finlandia í kók áður en hinir komu í mark). Hafa einhverjir skoðun á þessu?