Sæl gmaria. Ég skil hvað þú ert að fara, en ég er víst á annari skoðun með þetta. Ég þyrfti víst bara að fá betri rök fyrir þessum 20-30% sem þú talar um. Ég hef það líka á tilfinninguni að þú hafir ekki þurft á mörgum lyfjategundum að halda um ævina….. er það rétt hjá mér? kveðja, nirmala
Sammála GlingGlo, gmaria, varst þú ekki að kvarta í grein þinn fyrir stuttu að við landsmenn þyrftum að niðurgreiða lyf öryrkja, aldraðra og annara landsmanna? Gæti það haft eithvað með þessa grein þína að gera?
Er þetta ekki dæmigert, þessir endalausu lyfjafordómar. Kannski er bara ástæða fyrir aukinni greiningu hegðunarvandamála..gæti verið breytingar á samfélaginu sem við hrærumst í, gæti verið að fólk væri aðeins farið að opna augun og sjá að það eru ekki sálfræðimeðferðir eða bænir sem virka á ofvirkt barn. Það eru til svo mörg dæmi þar sem börn og unglingar hafa bjargast af rítalíni og þá er í mörgum ef ekki flestum tilvikum búið að reyna margt annað sem ekki virkaði. Af hverju þökkum við ekki...
Mér finnst allt of mikið um að fólk rakki niður skoðanir hvers og eins hér á Huga. Það hlýtur að vera hægt að rökræða málin frekar en að skjóta fólk niður um leið og það opnar munninn. En jú, ég er víst mjög sammála ramax um að það er líklegast uppeldið sem á mestann þátt í ástandinu hér í bæ. Ég held að fólk þurfi að sýna aðeins meiri ábyrgð en það gerir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..