Fjöldi manns á um sárt að binda vegna missis ástvina af slysförum, og þar í hópi er án efa ungt fólk sem kann að hafa þörf fyrir að tjá sig um sínar tilfinningar þess efnis. Ég fór að leita hér á Huga að vettvangi þessa, en fann ekki, nema mögulega hér á heilsusíðunni.
Mikilvægi þess að vinna úr sorginni er mikið , sem m.a. á sér stað með því að geta tjáð sig, í stað þess að loka inni þær tilfinningar sem viðkomandi upplifir í slíkum aðstæðum.
Án efa eru margir sem geta miðlað öðrum af sinni reynslu sem er gott. Sorgin er langur gangur í skógi tilfinninganna og getur
nýst okkur til aukins þroska , ef við getum reynt að vinna að því að byggja okkur upp að nýju eftir að okkar heimur hrynur í okkar nánasta umhverfi.

kveðja.
gmaria.