Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

TS: Vestax VCI-300 MKII m/ Serato ITCH (4 álit)

í Danstónlist fyrir 13 árum
Er að selja þessa græju, Vestax VCI-300 MKII. USB DJ Controller, all in one græja, nóg að tengja við tölvu og þú ert good to go. Hef einungis átt græjuna í viku, þannig að hún er eins og ný. Keypti hana aðallega til að prófa, er sjálfur með SL-a, ætla líklegast að fá mér Traktor Scratch Pro 2 í staðinn. Veit um marga sem nota eingöngu þessa græju þegar þeir dj-a á skemmtistöðum borgarinnar. Frekari upplýsingar um græjuna er að finna hér:...

Á í smávanda með Windows? (5 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þegar ég kveiki á tölvunni, þá kemur Desktop upp en ekkert á því og ég get lítið gert, þar sem að ekkert gerist þegar ég hægri-klikka. Auk þess er Start Menu og Taskbar ekki sýnilegt. Kemst þó í forrit í gegnum Windows Task Manager, en ekki í Control Panel og þann pakka. Gæti verið að einhver hérna viti hvað ég eigi að gera ?

Vandamál í Win XP (3 álit)

í Windows fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Nú á ég við tvö vandamál að stríða. Ég er í nýrri tölvu (keypt í September) og er sífellt að lenda í tvennu sem ég lenti aldrei í á gömlu 300Mhz tölvunni: 1. Kemur oft bluescreen þegar ég fer í leiki, með skilaboðunum þá að nv4_disp.dll eða kmixer.sys sé orsök þess (er með GeForce 2 MX 100/200 32mb). Ég er kominn með nýjasta driverinn fyrir skjákortið sem mér var ráðlagt að gera svo ég veit ekki hvað hægt er að gera. 2. Svo kemur einnig oft fyrir að hin og þessi forrit lokast, bara upp úr...

Hvað þýða þessir litlu kassar ? (3 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Núna hef ég verið að keyra um bæinn síðastliðinn mánuð og hef þá tekið eftir þessum litlu kössum, fjórum á hvorri akrein í Ártúnsbrekkunni, Sæbrautinni og Kringlumýrarbrautinni við Nesti í Kópavogi. Eins og fólk veit flest þá eru þetta staðir þar sem að fólk keyrir gjarnan mjög hratt en aðstæður til að vera að mæla fyrir lögreglu án þess að vera sýnilegir eru ekki mjög góðar. Ég var því að spá hvort það væri verið að fara að setja upp einhvers konar hraðamyndavélar þarna, og ef ekki hvað...

Tölvur úr BT ? (9 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Núna um daginn sá ég eina álitlega HP fartölvu sem ég var að spá í að kaupa, hef nú lent í slæmri reynslu hvað BT varðar og tölvan sem ég vinn núna á hefur ekki staðið sig sem skildi. Svo ég var að spá hver reynsla fólks væri af tölvum frá BT.

Af hverju gerir fólk þetta ? (18 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Núna um daginn var ég að keyra, keyrði framhjá lögreglustöðinni og sá þar einn nýlegan Porsche Boxster S sem er mjög fagur bíll að öllu leyti, nema hvað að þessi var GULUR, mér blöskraði bara alveg þegar ég sá þennan bíl. Sumir þessir gömlu Porsche-ar eru ágætir gulir og Ferrari og Lamborghini Diablo eru mjög fallegir gulir en þessi bíll var bara nánast ljótur útaf litnum. Gat bara ekki skilið af hverju einhver maður spreðar u.þ.b. 6 milljónum í bíl og hefur hann svo gulan. Vildi bara koma...

Hvernig væri nú smá vandvirkni í gerð kannana? (0 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hér er ég… lesandi þessa könnun um hver verður markahæstur á HM, og þar er Giovane Elber á lista, þótt hann sé ekkert á leiðinni þangað, ekki miklar líkur á að hann fari að skora mikið á HM í München =)

Athugasemd við mynd! (0 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég sé hérna myndina af Anelka og þar stendur undir sem lýsing á myndinni “missir af HM”. Ég get nú varla sagt að hann missi beinlínis af HM ef hann er ekki valinn. Pires missir af HM þar sem að hann er meiddur en Anelka er bara ekki nógu góður fyrir HM hóp Frakka svo að hann er ekki að missa af neinu sem slíku =)

Pires frá til jóla = RUGL ! (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 1 mánuði
Guð minn góður, viljið þið hætta að posta þessum fréttum frá teamtalk.com. Komið með þetta frá einhverjum vef sem notast á við staðreyndir en ekki slúður. Það er verið að taka ákvörðun um hvort það þurfi að skera hann upp eða ekki og læknarnir ætla að bíða í 10-15 daga og sjá hvort það er nauðsynlegt.

Könnun (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mér finnst nú ekkert nema fáránlegt hvað er farið að samþykkja hérna, eins og þessa fáránlega könnun sem er uppi núna, þegar þetta er skrifað sem er svohljóðandi: ———————- Hvað ætti að lækka verðið á DVD diskum um mikið 1. 10% 2. 20%% 3. 30% 4. 40% 5. ekkert ———————– Auðvitað vilja allir að þetta sé lækkað um 40%, maður vill alltaf fá þetta sem ódýrast, skil ekki þessi 45% sem vildu ekki að þetta væri lækkað um 40%, vilja greinilega borga meira fyrir diskana sína. Fáránleg könnun út í eitt!

BMW M3 (44 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Núna um daginn átti ég leið hjá Iðnskólanum í Reykjavík og þar stóð einn grár BMW M3. Síðan varð mér litið á dekkin og hugsaði með mér “ég held nú að það séu massífari og stærri dekk undir M3” og svo sagði félagi minn mér að hann trúði varla að þetta væri M3, því að það væri algjört dósahljóð í honum. Svo fletti maður upp, og þá kom í ljós að þetta var bara venjulegur 113 hestafla 318. Allir sem eitthvað vit hafa á bílum sjá að þetta er ekki M3 (ég, sem hef nú ekki mikið vit á bílum tók...

Þráðlaus netkort! (7 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hvort og hvar hægt er að fá þráðlaus netkort á Íslandi ? Og hvað þau kosta líka þá ef þau eru til þ.e.a.s Vegna þess að núna eru nokkrar tölvur á heimilinu mínu og vil ég helst tengja þær saman í eitt netkerfi, en ég nenni ekki að vera með kapla um allt hús. Hef farið á flestar tölvusíðurnar og hef ekki fundið neitt þar, svo ég leitaði bara hingað =)

HM Riðlarnir (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég veit nú ekkert hvort að einhver hefur póstað þessu áður hérna eða ekki, en einhver spurði hvernig riðlarnir væru og ég var kominn með svo langt svar að ég ákvað bara að henda þessu í grein. So here it comes: A Riðill: Frakkland, Senegal, Úrúgvæ, Danmörk B Riðill: Spánn, Slóvenía, Paragvæ, S-Afríka C Riðill: Brasilía, Tyrkland, Kína, Kosta Ríka D Riðill: S-Kórea, Pólland, USA, Portúgal E Riðill: Þýskaland, Sádí Arabía, Írland, Kamerún F Riðill: Argentína, Nígería, England, Svíþjóð G...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok