Músikin er fín en diskurinn er ekki alveg að virka fyrir mig eins og skyldi út af þessari asnalegu “vonlensku”. Það er eiginlega allt eins sem hann syngur: fa, ísæjon, tjú, falon, nó og svo frv. í öllum lögunum. Það væri kannski allt í lagi ef hann myndi nota mismunandi setningar í mismunandi lögum!! Út af þessari staðreynd þá er þessi diskur ekki snilld að mínu mati og hann endist ekki nógu vel.