Ég tileinka þér
þetta ljóð
þú sem ert ekki til
þú sem ég sé ekki
heyri ekki
finn ekki

Fyrirgefðu mér fyrir
hvernig ég var í gær
hvernig ég er í dag
og hvernig ég verð
á morgun

Því ég veltist um af sársauka
og grátbið þig um að hætta
að vera til