Shit. Mig svimaði örlítið og ég varð að setjast niður. Hvað hafði ég nú komið mér í? Hvað myndi ég segja við kærustuna? Nei, nú hendir hún mér út, og þó fyrr hefði verið..

-“Ástin mín..?”
-“Já, elskan?”
-“Hérna, ég þarf að tala við þig um soldið.”
-“Já, hvað?”
-“Sko, hvernig lýst þér á að fá gesti í nokkra daga?”
-“Hvaða gesti?”
-“Æi, bara nokkra kana..”
-“Hvaða kana?”
-“Umm, hljómsveitirnar Face and Lungs og Snacktruck frá New York og Philly..”
-“Ha, hvað eru þeir eiginlega margir???”
-“Erm, fjórir..”
-“Fjórir??”
-“Já, eða bíddu, fimm.”
-“Fimm???”
-“Nei, ok, þeir eru sjö…”
-“SJÖÖÖÖÖÖÖÖÖ???”
-“Já, sjö.. Ég blæs bara upp nokkrar vindsængur og fel viskíið. Tek kannski bara til í geymslunni niðri í kjallara og svo sendum við krakkann bara í sveit eða eitthvað. Kettirnir geta bara farið upp á Kattholt..”
-“Sko, #!$%&#$%#&%$#&$#&%$#&%$#&$#&$%#&. Svo vil ég að þú vitir að #”%#”%$#”%$#”%#”…”
-“Ok, flott, æðislegt. Þú ert best í heimi, ég skal ryksuga og vaska upp í heilt ár.”

Já, hún er sko yndisleg hún ástin mín og henni rann reiðin um síðir. Núna er hana farið að hlakka alveg jafn mikið til og mér og við getum svo sannarlega ekki beðið eftir að þessir villingar komi og valdi því að Húsfélagið kalli saman neyðarfund.

-“Við viljum fá svör!!! Hvaða geðsjúklingar eru þetta sem hýrast um í geymslunni ykkar þessa dagana??”

Fimmtudagurinn 13. maí*
Sirkus v/ Klapparstíg
Kl. 21:00 stundvíslega
Face and Lungs
Snacktruck
FRÍTT INN!!!!

Föstudagurinn 14. maí
Grand Rokk v/ Smiðjustíg
Kl. 23:00 stundvíslega
Face and Lungs
Snacktruck
Jan Mayen
Kimono
500 krónur inn

*ath. Þar sem húsrúm er af afar skornum skammti á Sirkus bendi ég fólki á að mæta tímanlega.

Face and Lungs

Three guys from New York City have wrenched their shoulders from the
great wheel, abandoned their lowly posts and fled to Iceland. They wish to serenade you with the tender fury that resounds in the hearts of all free men. The drums will stab, the guitar will twist and pierce, and the gigantic bass will permeate what remains of your body. Waves of sound will careen off of the walls of your clubs and extend sonic antlers in to your streets. Out of this tunneling and echoing cacophony will emerge a union of their energy and yours. Your minds will untangle, your troubles will sink beneath your feet and your brain/ass will shake with total abandon.

www.faceandlungs.com


—————

Snacktruck

Matt and Nate strike fast and furiously straight from the first note.
They emit inhuman sounds with very human tools; a guitar, drums, and two voices. The Truck's brand of rock music will make your blood surge, your head bounce and your arms fly in several directions at once. You'll laugh, you'll cry, you'll jump and thrash and nod along, but slowly you might feel yourself embracing another mode altogether. It's much like the one that enveloped you while you were quiet, small and confident.You're lying between your mother's teats, swallowing full virgin breaths…

www.snacktruck.com


Hlekkir: www.faceandlungs.com www.snacktruck.com www.mineur-aggressif.com www.jan-mayen.com

Joinið okkur í geðveikinni og endilega skellið ykkur á heimasíður hljómsveitanna og sjáið um hvað málið snýst.

Ciao, Gylfi Blöndal.


www.mineur-aggressif.com