hvernig gat ég haldið
að ég gæti plantað mér
á einn stað,
rifið mig svo upp
með rótum,
og haldið að ég gæti
blómstrað aftur
á nýjum stað,
í nýrri mold,
með aðra næringu,

allt aðra
en þá næringu
sem ég þarf
til að lifa?