Hæ Flott grein hjá þér. Í þessu þjóðfélagi sem við lifum í er öllum heimilt að hafa sína skoðun, annars væri ekki gaman að lifa hér. Vissirðu það að meira en helmingur Íslendinga er fífl. Þessi hluti hefur eflaust kosið sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum, en látum það liggja milli hluta. Ef 100% landsmanna hefði kosið sjálfstæðisflokkinn þá værum við öll fífl. Ég er veiðimaður og þú getur sett mig í einhvern flokk ef þú vilt. Ég veiði vegna ánægju og áhuga. Ég jafnframt deyði ekki dýr...
hÆ sKORRADALSVATN ER 11 KM LANGT OG BLAUTT. éG HEFÐI FREKAR KEYPT BÚSTAÐ MEÐ VEIÐIRÉTTI Í nORÐURÁ cAPS OFF Annars eru menn að veiða þarna stórar bleikjur, STÓRAR bleikjur á spún sem er dreginn eftir bátum. Hef heyrt að vatnið henti betur sjómönnum heldur en landkrabbaveiðimönnum. -Millennium
Hæ Reyndu næst að fara að veiða án þess að smakka öl eða sterkara. Það gerir gæfumuninn og vindhnútunum fækkar og þú tapar færri flugum. :) Þegar þú veiðir fyrir ofan foss, ertu þá með sama leyfi og í klóakinu eða fæst það leyfi annarstaðar? Hef heyrt um góðar og vænar bleikjur í Hvalvatni en mig minnir að veiðirétturinn er í einkaeign og sá sem hafi hann stundi netaveiðar í vatninu. Annars er hann ekki alla daga þarna… -Millennium
Iss, það er nú ekkert. Ég var einu sinni í Kleifarvatni og veiddi svo marga að ég hafði ekki við að telja. Svo þegar að ég var búinn að fá alla malarflutningabílana sem voru í Vatnsskarðinu til að keyra aflann heim þá hafði lækkað í vatninu um 5 metra. Geri aðrir betur… -Millennium
Hæ Afsakaðu en það var stafabil í slóðinni og það er því miður ekki leyft… http://www.insidesportfishing.com/Encyclope dia/Articles/1816.asp?CLID=1 Þarna er mynd af Portlandsbragðinu (the Ultimate Portland flavour) og einhver texti um það. Millennium
Hæ Það eru alveg skrilljón búðir hérna sem selja allt mögulegt sem tengist veiði. Allar stóru íþróttabúðirnar, veiðibúðinar og bensínstöðvar eru með einhverskonar veiðibúnað til sölu. En það er kannski eitt sem þú ættir að hafa í huga þegar að þú kaupir veiðibúnað. Ekki kaupa sett sem innihalda allt. Hljómar kannski undarlega en það er bara þannig að flest af þessum settum eru ekkert sérstaklega endingargóð. Svo er alltaf í þeim eitthvað af hlutum sem ekki eru notaðir. Eins og td....
Hæ Shakespeare er alveg ágætt merki og hægt að treysta flestu sem kemur af þeim bænum. Mín fyrsta alvöru flugustöng og línur koma frá þessu fyrirtæki og bara eitt gott um þessar vörur að segja. Stöngina á ég enn eftir 13 ár, mikið notuð á sínum tíma og er enn notuð í laxveiðina og sem varastöng. Svo er reyndar eins og með öll önnur merki hægt að fá eitthvað sem ekki er eins og það á að vera. En farðu bara yfir hlutina áður en þú kaupir. Bæ Millennium
Hæ Moose, hvernig fór veiðiferðin mikla sem þú ætlaðir að fara í í vor þarna í Kanada minnir mig, þar sem þú þurftir að halda á bátunum og öllu dótinu og svo ætlaðir þú að taka myndir af öllu heila klabbinu og birta hér á huga.is… Bæ Millennium
Hæ Bleikjan í Brúará er ekkert mikið fyrir að hreyfa sig. Vill frekar liggja á stöðum þar sem meira er af æti. Þar sem þú sérð fiskinn liggja er líklega þannig staður og þá er bara að vera þrjóskur og kasta aftur og aftur á staðinn og bíða eftir að flugan kemst í strike-zone-ið hjá bleikjunni. Þetta strikezone er oft ekki nema sem nemur kjaftstærð fisksins þannig að menn geta orðið frekar pirraðir á að vera lengi að kasta á sama fiskinn… Ég var einhverntímann búinn að gera smá lýsingu á...
Hæ Kleifarvatn. Leyfið færðu á ESSO bensínstöðvunum í Hafnarfirði og á http://www.agn.is/veidileyfi.asp?cat_id=970 - 800 eða 1000 kall minnir mig. Flugur eru bestar til veiði þarna en hitt er náttúrulega vel brúklegt og gefur vel. Svartar flugur hafa reynst mér bestar þarna, td. Mobuto og svo er peacockinn alltaf sterkur. Prófaðu tangann nyrst í vatninu í vesturátt. Svo eru góðir staðir í kringum stapana, þá aðallega Syðri-stapann (að vestanverðu í vatninu við veginn). Sunnan undir...
Hæ Keyrir sem leið liggur <b>beint</b> suður Reykjanesbrautina í gegnum Hafnarfjörð, en ekki samt alveg heldur beygir til <b>vinstri</b> (ef þú ert á leiðinni í átt að Keflavík) við kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Svo ferðu bara <b>beint</b> í gegnum hesthúsahverfin og gætir þess að hafa gluggana niðurskrúfaða svo að sveitailmurinn komist vel inn í bílinn. Yfir nokkrar hraðahindranir er að fara en mig minnir að þær séu þrjár og svo einhverjar þrengingar líka. Því næst kemurðu að brekku þar sem...
Hæ En verðurðu ekki sár ef mamma þín þarf að leggjast inn af því að alltof margir hringdu í hana og að auki var alltaf á tali hjá henni þegar þú reyndir að ná sambandi við hana? En annars þá er ekkert að því að tékka á póstinum með 5 sek millibili. Ef menn eru að bjóða þessa þjónustu þá eiga menn að hafa vélbúnað fyrir verkið. Það eru margir að keyra póstservera á einhverjum dollum sem virka með linux. Svo er notendum bætt við og einn daginn falla turnarnir… Ekki mitt mál Millennium
Hæ Það er náttúrulega Garðflugan (maðkurinn) sem gefur alltaf einhverja fiska. Ef þú ert í SVFR þá minnir mig að þú borgir helminginn af veiðileyfinu ef þú sýnir félagsskírteini. Millennium
Hæ Úr Laugarvatni rennur Hólaá sem í rennur síðan vatn úr Apavatni. Þaðan fellur hún í Brúará og nefnist það svæði Hagaós. Ég hef einu sinni veitt á Laugarvatni. Var á bát með flot og maðk. Fengum ekki neitt. Ég myndi setja stefnuna á Hólaá. Þar er alltaf fiskur og einnig í útfallinu af vatninu við ána. Mikið um smáfisk, frá 1/2p og alveg upp í 6p fiska. Leyfið færðu hjá Skúla í Útey og kostar slikk. Efast um að það séu laus leyfi í Hagaós en þú getur tékkað á því á bænum Haga. Millennium
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..