Ég er á suðvesturhorninu þar sem er náttúrulega allt vaðandi í fugli… Ég ætla að bíða rólegur þangað til að snjór kemur í fjöll, það skapar rétta stemningu einhvernveginn. Ef þú ferð á vikin.is þá geturðu lesið skotfréttir þeirra Húsvíkinga. Þetta eru náttúrulega Þingeyingar, veit ekki alveg hvað er að marka :-) En þeir virðast vera að gera ágætis hluti.