Ég var að leggja til að aðskilja listgildi og notagildi nytjalistar. En kannski er það ekki hægt? Svo geta náttúrulega bókmenntir, ljóð, söngtextar, myndlist og skúlptúr innihaldið ýmsan pólítískan og siðferðislegan áróður sem mætti flokka sem notagildi. Já hvað finnst ykkur um það? Getur myndlist og skúlptúr ekki alveg eins verið nytjalist, t.d. félagslegt raunsæi Sovíetríkjanna? Þetta var e.t.v. ófullkomin skilgreining hjá mér, en getur einhver betrumbætt hana? Hvað finnst fólki um þessa:...