Ísland í dag!
Ég er dópsali og er mjög hátt sett í þeirri starfsstétt. Um daginn sveik ég aðila í sömu starfsstétt. Sá aðili er voða reiður og ég veit fyrir víst að hann ætlar sér að klaga mig til lögreglunnar í hefndarskyni. Þegar að hann klagar mig er það næsta víst að ég verð kærð og stungið í steininn. Til að leysa þetta bévítans vandamál er hagstæðara fyrir mig að myrða kauða, þar sem að fangelsisdómur fyrir morð er ívið hagstæðari fyrir mig heldur en að vera dæmd fyrir fíkniefnamisferlið.

Ég er þáttastjórnandi í sjónvarpsþætti. Einn daginn dettur mér það í hug að það gætiverið sniðugt að kasta bensínsprengju á sendiráð í Reykjavík. Kannski ekki góð hugmynd, dæmi hver fyrir sig. Það er réttað yfir mér og ég á yfir höfði mér 6 ára fangelsisdóm fyrir að smána erlenda þjóð. Í réttarsalnum við hliðin á mér er verið að rétta yfir manni sem misnotaði stjúpdóttur sína, 7 ára gamla, kynferðislega. Hann á yfir höfði sér 2 ára fangelsisdóm, skilorðsbundinn, fyrir að eyðileggja líf barns. En við skulum hafa það íhuga, að auðvitað þurftu sendiráðsfólkið að láta mála húsið utanvert uppá nýtt eftir þetta gríðarlega voðaverk. Það er meiriháttar fyrirhöfn.


Ég er gefin fyrir Lunda og spila á gítar. Ég er stjórnarformaður ýmissa nefnda. Það gleymdi einhver að borga mér fyrir öll erfiðu nefndarstörfin mín, þannig að ég bara tek það sem mér finnst sanngjarnt verð fyrir vinnu mína af almanna fé. Það er mér óskiljanlegt að fólk skuli ekki sýna þessu skilning og þurfi alltaf að skipta sér af því sem ég geri og gagnrýna nýja fína húsið mitt. Sem betur fer á ég skilningsríka vini sem hjálpa mér að hnekkja á þeim 27 ákæruatriðum sem að ég hef verið kærð fyrir, og án vafa verð ég komin í góða stöðu í atvinnulífinu innan skamms tíma. Mikið er ég heppin að besti vinur minn er kóngur Íslands og ég mun alltaf geyma heillaóska bréfin sem landinn hefur sent mér á þessari ögurstundu lífs míns.


Ég á rosa stórt fyrirtæki. Það er að meika fullt af peningum fyrir budduna mína en er ekki búið að skila neinum sérstökum hagnaði síðustu árin. Um daginn vantaði mig smá aura til að malla og bralla allskonar dót í fyrirtækinu mínu en hvorki bankinn né pabbi gátu lánað mér þessa örfáu aura. Þannig að ég hringdi bara í besta vin minn og bað hann um að hjálpa mér. Hann reddaði málinu á nó tæm. Þegar ég spurði þennan fórnfúsa vin minn hvar hann hafði grafið upp aurana sagði hann ” Örlygur öryrki og Alli atvinnulausi, Finnifatlaði og Lóa Langveika ásamt fleirum lögðu í púkk. vá- sagði ég, hvernig fékkstu þau til að fallast á það? Ekkert mál!, sagði vinur minn, ég bara sleppti því að spyrja þau. Mikið er nú gott að> eiga góða vini.


Ég bý í Fossvoginum og næ ekki ennþá Skjá Einum. En góðu fréttirnar eru þær, það stendur til að byggja nýtt tónlistarhús. Mikið er ég lifandi ósköp fegin að ég geti að minnsta kosti hlustað á fagra hljóma strengja meðan ríkið steypir sér í skuldir og misyndismenn fá syndaaflausn. Megi Guð sjálfur blessa þessa dýrmætu gjöf.


Eitthvað á þessa leið er Ísland í dag.


En til að brjóta ekki útaf vananum þá skulum við fyrirgefa sem allra allra fyrst svo öll dýrin í skóginum geti haldið áfram að vera vinir. Þá geta Lundar leikið við Fálka í friði fyrir sporðdrekum fjölmiðlanna, Rottweilerhundar og Ernir syngja saman við varðeld, merðir og mannætur eru jafningjar meðal sníkjudýra og afæta og konungur ljónanna orgar niður óréttlætið í fagurgræna og fullkomna skóginum okkar.


Góða geðheilsu

kaldhæðnislegt ekki satt???
kv. syndaselur :o)